Magnesium Muscle

/ Heilsuvörur / Svefn / Magnesium Muscle
magnesíum
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Heilsuhillur verslana

Magnesium Muscle

Better You
Vörunúmer: 16000130
Pakkningastærð: 100 ml
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Heilsuhillur verslana

Magnesíum er fjórða mikilvægasta steinefni líkamans og er gríðarlega mikilvægt fyrir heilsu okkar

Magnesíum er gríðarlega mikilvægt fyrir heilsu okkar. Það kemur við sögu í yfir 300 mismunandi efnaskiptaferlum í líkamanum og er best þekkt fyrir að hafa slakandi áhrif á vöðva líkamans.

Magnesíum olíurnar frá Better You er einstök formúla í úðaformi sem borin er beint á þann stað sem er að angra með einstakri virkni.

Magnesíum Muscle er sérstaklega gert með íþróttafólk í huga en þessi blanda er saman sett af magnesíumklóríð, blandað þrúgukjarnaolíu, kamfóru, sítrónu og svörtum pipar til að hjálpa vöðvunum við endurheimt. Tilvalið fyrir allt íþróttafólk sem stundar langar og strangar æfingar. Aðrar tegundir af magnesíum olíu frá Better You eru Magnesíum Original, Magnesíum Goodnight og Magnesium Joint.

Magnesíum stuðlar að:

  • viðhaldi eðlilegra beina
  • viðhaldi eðlilegra tanna
  • eðlilegri sálfræðilegri starfsemi
  • eðlilegri vöðvastarfsemi
  • eðlilegri prótínmyndun
  • eðlilegri starfsemi taugakerfisins
  • eðlilegum orkugæfum efnaskiptum
  • því að draga úr þreytu og lúa

Merki um magnesíumskort:

  • Svefnerfiðleikar
  • Sinadráttur
  • Vöðvakrampi
  • Aukin næmni fyrir stressi
  • Síþreyta
  • Orkuleysi
  • Fjörfiskur

Til fróðleiks:

Við fáum magnesíum úr ýmsum matvælum en samt sem áður er það mjög algengt að fólk  sé í skorti og t.d. er talið að allt að 80% Bandaríkjamanna sé í skorti. Næringarsnauður jarðvegur sem nýttur er til ræktunar, lélegt/slæmt mataræði, óhófleg áfengis- og koffínneysla, ýmis lyf og mikil streita er meðal þess sem veldur skorti og svo skolast steinefni líka út þegar við svitnum.

 

Notkun: Spreyið 10 úðum á liði eða vöðva. 10 sprey veita þér 150 mg af magnesíum. Það má þó bera það á eins oft og þörf er á. Hugsanlega finnur fólk fyrir kláða eða kitli þegar magnesíum er sett á húðina en það gerist þegar það smýgur inn í líkamann.

Ekki skal nota meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Tengdar vörur…