Magnesíum Gel

Magnesium gel
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir
  • Flest apótek og heilsubúðir

Magnesíum Gel

Better You
Vörunúmer: 16000158
Pakkningastærð: 150 ml
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir
  • Flest apótek og heilsubúðir

Gelið fer hratt inn í húðina og er afar gott á auma vöðva

Magnesíum Gelið frá Better You er unnið á þann hátt að það smýgur hratt og vel inn í húðina. Rannsóknir sýna að virkni gelsins skilar sér 5 sinnum hraðar en ef um töflur er að ræða.

Magnesíum er gríðarlega mikilvægt fyrir heilsu okkar. Það kemur við sögu í yfir 300 mismunandi efnaskiptaferlum í líkamanum og er best þekkt fyrir að hafa slakandi áhrif á vöðvana ásamt því að hafa góð áhrif á svefn.

Inniheldur 100% náttúrulegt og hreint magnesíum klóríð, hentar öllum aldurshópum og er öruggt til notkunar bæði hjá börnum sem og ófrískum konum.

Það er einstaklega gott að nota það til að nudda auma og stífa vöðva og þar sem upptakan er mjög hröð er hægt að hreinsa og/eða þurrka húðina nokkrum mínútum eftir að efninu hefur verið nuddað á.

Magnesíum stuðlar að:

  • viðhaldi eðlilegra beina
  • viðhaldi eðlilegra tanna
  • eðlilegri sálfræðilegri starfsemi
  • eðlilegri vöðvastarfsemi
  • eðlilegri prótínmyndun
  • eðlilegri starfsemi taugakerfisins
  • eðlilegum orkugæfum efnaskiptum
  • því að draga úr þreytu og lúa

Merki um magnesíumskort:

  • Svefnerfiðleikar
  • Sinadráttur
  • Vöðvakrampi
  • Aukin næmni fyrir stressi
  • Síþreyta
  • Orkuleysi
  • Fjörfiskur

Til fróðleiks:

Við fáum magnesíum úr ýmsum matvælum en samt sem áður er það mjög algengt að fólk  sé í skorti og t.d. er talið að allt að 80% Bandaríkjamanna sé í skorti. Næringarsnauður jarðvegur sem nýttur er til ræktunar, lélegt/slæmt mataræði, óhófleg áfengis- og koffínneysla, ýmis lyf og mikil streita er meðal þess sem veldur skorti og svo skolast steinefni líka út þegar við svitnum.

 

Notkun: Berið gelið á liði eða vöðva í litlu magni þar sem magnesíum innihaldið er mjög hátt. Það má þó bera það á eins oft og þörf er á. Hugsanlega finnur fólk fyrir kláða eða kitli þegar magnesíum er sett á húðina en það gerist þegar það smýgur inn í líkamann.

Ekki skal nota meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Tengdar vörur…