Magnesíum Muscle flögur

/ Heilsuvörur / Svefn / Magnesíum Muscle flögur
magnesium muscle
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir

Magnesíum Muscle flögur

Better You
Vörunúmer: 1KGMUSCLEFLAKES-001
Pakkningastærð: 1 kg
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir

Magnesíum Muscle flögur 1kg

Magnesíum er eitt af mikilvægustu steinefnum líkamans og er m.a. nauðsynlegt fyrir eðlilega starfsemi hjarta, vöðva og taugakerfis. Magnesíum hefur góð áhrif á endurheimt vöðva eftir álag. Líkaminn getur tekið upp magnesíum í gegnum húðina og því er tilvalið að fylla á magnesíum birgðirnar með því að bæta magnesíum út í baðið eða heita pottinn til að endurnæra líkamann eftir erfiðan dag.

Magnesíum flögurnar leysast upp í vatni og eru einstaklega slakandi og róandi fyrir sál og líkama. Einnig er tilvalið að blanda flögunum í fótabað sem getur verið áhrifaríkt gegn fótapirring og þreytu í fótum eða jafnvel blanda þeim í baðið eða heitapottinn. Upptaka magnesíum í gegnum húðina er afar áhrifarík. Magnesíum flögurnar eru hreinasta form af magnesíum sem hægt er að fá.

Magnesíum Muscle inniheldur magnesíum klóríð, sítrónu og rósmarín fyrir djúpa slökun og endurheimt vöðva eftir erfiðar æfingar og átök.

Engin skaðleg aukaefni. Óhætt fyrir barnshafandi konur, konur með barn á brjósti og börn frá þriggja mánaða aldri

Magnesíum stuðlar að:

  • viðhaldi eðlilegra beina
  • viðhaldi eðlilegra tanna
  • eðlilegri sálfræðilegri starfsemi
  • eðlilegri vöðvastarfsemi
  • eðlilegri prótínmyndun
  • eðlilegri starfsemi taugakerfisins
  • eðlilegum orkugæfum efnaskiptum
  • því að draga úr þreytu og lúa

Til fróðleiks:

Við fáum magnesíum úr ýmsum matvælum en samt sem áður er það mjög algengt að fólk  sé í skorti og t.d. er talið að allt að 80% Bandaríkjamanna sé í skorti. Næringarsnauður jarðvegur sem nýttur er til ræktunar, lélegt/slæmt mataræði, óhófleg áfengis- og koffínneysla, ýmis lyf og mikil streita er meðal þess sem veldur skorti og svo skolast steinefni líka út þegar við svitnum.

Notkun:

Fótabað: Blandið um 150 gr. í hentugt fat, bala eða í baðið og setjið fætur í 20 mínútur eða lengur. Fótabaðið er sérlega hentugt fyrir þreytta og þrútna fætur og ef fólk þjáist af fótakrampa, bjúg eða fótaóeirð.

Bað: Blandið um 250 – 500 gr. í baðkar og baðið ykkur í 20 himneskar mínútur eða lengur eftir þörfum. Magnesíum baðmeðferð er einkum hentug gegn krampa og þreytu í vöðvum. Ef þú ert með auma og/eða stirða liði er einstaklega gott að fara í magnesíum bað eftir langar og strangar æfingar til að flýta vöðvabata og endurheimt.

Ekki skal nota meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Tengdar vörur…