Magnesíum Sleep húðmjólk
Better YouHúðmjólk með Lavender og Kamillu sem róar og sefar
Magnesíum Sleep er húðmjólk fyrir fullorðna en hún inniheldur magnesíum til að hjálpa þreyttum vöðvum að ná slökun, lavender og kamillu til að róa og sefa og undirbúa líkamann fyrir svefninn. Saman geta þessi efni hjálpað til við að ná endurnærandi nætursvefni.
Magnesíum húðmjólkin smýgur auðveldlega inn í húðina svo áhrifin skili sér hratt og vel.
- Hentar öllum fullorðnum einstaklingum, einnig ófrískum konum.
- Inniheldur ekki parabena, gervi-, litar- eða ilmefni.
Magnesíum stuðlar að:
- viðhaldi eðlilegra beina
- viðhaldi eðlilegra tanna
- eðlilegri sálfræðilegri starfsemi
- eðlilegri vöðvastarfsemi
- eðlilegri prótínmyndun
- eðlilegri starfsemi taugakerfisins
- eðlilegum orkugæfum efnaskiptum
- því að draga úr þreytu og lúa
Merki um magnesíumskort:
- Svefnerfiðleikar
- Sinadráttur
- Vöðvakrampi
- Aukin næmni fyrir stressi
- Síþreyta
- Orkuleysi
- Fjörfiskur
Til fróðleiks
Við fáum magnesíum úr ýmsum matvælum en samt sem áður er það mjög algengt að fólk sé í skorti og t.d. er talið að allt að 80% Bandaríkjamanna sé í skorti. Næringarsnauður jarðvegur sem nýttur er til ræktunar, lélegt/slæmt mataræði, óhófleg áfengis- og koffínneysla, ýmis lyf og mikil streita er meðal þess sem veldur skorti og svo skolast steinefni líka út þegar við svitnum.
Notkun: nuddið 4 pumpum á líkamann og nuddið vel. 5 ml (4 pumpur) af Magnesíum Sleep húðmjólk gefa 150 mg af magnesíum sem líkaminn tekur upp. Það tekur 7 daga að meðaltali að ná hámarksvirkni og best er að nota húðmjólkina u.þ.b. 30 mínútum fyrir svefn, á hreina og þurra húð. Má bera á allan líkamann og sérstaklega gott fyrir háls, herðar og fætur.
Ekki skal nota meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
Flögur fyrir þreytta vöðva og liði.
-
Magnesium Muscle fyrir íþróttafólk.