Magnesíum Sleep flögur
Better YouMagnesíum Sleep flögur 1 kg
Magnesíum er eitt af mikilvægustu steinefnum líkamans og er nauðsynlegt fyrir meðal annars eðlilega starfsemi hjarta, vöðva og taugakerfis. Líkaminn getur tekið upp magnesíum í gegnum húðina og því er tilvalið að fylla á magnesíum birgðirnar með því að bæta magnesíum út í baðið eða heita pottinn til að endurnæra líkamann eftir erfiðan dag.
Magnesíum flögurnar leysast upp í vatni og eru einstaklega slakandi og róandi fyrir sál og líkama. Einnig er tilvalið að blanda flögunum í fótabað sem getur verið áhrifaríkt gegn fóta pirring og þreytuv eða jafnvel blandað þeim í baðið eða heita pottinn. Upptaka Magnesíum í gegnum húðina er áhrifarík. Magnesíum flögurnar eru hreinasta form af magnesíum sem hægt er að fá.
Magnesíum Sleep inniheldur magnesíum klóríð, lavender og kamillu fyrir djúpa slökun og góðan svefn.
Engin skaðleg aukaefni. Óhætt fyrir barnshafandi konur, konur með barn á brjósti og börn frá þriggja mánaða aldri
Magnesíum stuðlar að:
- viðhaldi eðlilegra beina
- viðhaldi eðlilegra tanna
- eðlilegri sálfræðilegri starfsemi
- eðlilegri vöðvastarfsemi
- eðlilegri prótínmyndun
- eðlilegri starfsemi taugakerfisins
- eðlilegum orkugæfum efnaskiptum
- því að draga úr þreytu og lúa
Til fróðleiks:
Við fáum magnesíum úr ýmsum matvælum en samt sem áður er það mjög algengt að fólk sé í skorti og t.d. er talið að allt að 80% Bandaríkjamanna sé í skorti. Næringarsnauður jarðvegur sem nýttur er til ræktunar, lélegt/slæmt mataræði, óhófleg áfengis- og koffínneysla, ýmis lyf og mikil streita er meðal þess sem veldur skorti og svo skolast steinefni líka út þegar við svitnum.
Notkun:
Fótabað: Blandið um 150 gr. í hentugt fat, bala eða í baðið og setjið fætur í 20 mínútur eða lengur. Fótabaðið er sérlega hentugt fyrir þreytta og þrútna fætur og ef fólk þjáist af fótakrampa, bjúg eða fótaóeirð.
Bað: Blandið um 250 – 500 gr. í baðkar og baðið ykkur í 20 himneskar mínútur eða lengur eftir þörfum. Magnesíum baðmeðferð er einkum hentug gegn krampa og þreytu í vöðvum. Ef þú ert með auma og/eða stirða liði er einstaklega gott að fara í magnesíum bað eftir langar og strangar æfingar til að flýta vöðvabata og endurheimt.
Ekki skal nota meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
Magnesium með róandi ilmkjarna olíum.
-
Flögur fyrir þreytta vöðva og liði.
-
Einstaklega slakandi og róandi magnesíum flögur fyrir líkama og sál.
-
Magnesium Muscle fyrir íþróttafólk.