Panodil Brus
Panodil Brus freyðitöflur eru verkjastillandi og hitalækkandi.
Fullorðnir og börn 12 ára og eldri (að lágmarki 40 kg): 1 g 3-4 sinnum á dag, þó mest 4 g á sólarhring. Í einstaka tilfellum getur ½ g 3-4 sinnum á dag verið nægjanlegt. Lágmarkstími á milli skammta er 4 klst.
Börn 2-11 ára: 50 mg/kg/sólarhring, gefið í 3-4 skömmtum. Lágmarkstími á milli skammta: 6 klst.
Hámarkstími meðferðar án ráðlegginga læknis er 3 dagar.
Börn yngri en 2 ára: Ekki má nota lyfið nema eftir læknisráði.
Freyðitöflurnar skal leysa upp í glasi af vatni.
Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra, dreifa, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til inntöku, Panodil Brus freyðitöflur. Inniheldur paracetamól. Við vægum verkjum. Hitalækkandi. Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Tengdar vörur…
-
Voltaren Gel er notað við staðbundnum bólgum.
-
Panodil töflur eru verkjastillandi og hitalækkandi.
-
Panodil Zapp töflur eru verkjastillandi og hitalækkandi.
-
Við bólgum og aukinni slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki.