Panodil Zapp
Panodil Zapp töflur eru verkjastillandi og hitalækkandi.
Klínísk gögn hafa sýnt að Panodil Zapp veitir hraðari verkjastillingu en venjulegar parasetamól töflur.
Fullorðnir og börn eldri en 12 ára (að lágmarki 40 kg): 1 g 3-4 sinnum á sólarhring, að hámarki 4 g á sólarhring. Í sumum tilvikum geta 500 mg 3-4 sinnum á sólarhring verið nægileg. Lágmarkstími á milli skammta er 4 klst.
Börn yngri en 12 ára mega ekki nota lyfið nema samkvæmt læknisráði.
Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra, dreifa, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til inntöku, Panodil Brus freyðitöflur. Inniheldur paracetamól. Við vægum verkjum. Hitalækkandi. Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Tengdar vörur…
-
Notað til meðhöndlunar á einkennum nefstíflu og nefrennslis.
-
Strepsils er við eymslum og ertingu í hálsi.
-
Strepsils er við eymslum og ertingu í hálsi.
-
Panodil töflur eru verkjastillandi og hitalækkandi.