Anti Leg Cramps
NavehAnti Leg Cramp gegn krampa í fótum
Krampar í fótum á næturna geta valdið leiðinda óþægindum en þeir standa oftast yfir í nokkrar mínútur. Orsakir þess að fá krampa eru skyndilegir og ósjálfráðir samdrættir í einstökum vöðvum eða vöðvahópum.
Krampar í fótum eru algengt vandamál og eiga sér oftast stað í kálfa eða smærri vöðvum í fótum. Tilhneigingin til að þjást af slíkum krömpum vex með hækkandi aldri. Um 30% þeirra sem eru yfir 60 ára aldri finna gjarnan fyrir krömpum í fótum og talið er að þeir leggist á allt að 1 af hverjum 3 einstaklingum yfir 80 ára aldri.
Líklegar orsakir fyrir vöðvakrampa eru taldar vera:
- Hypomagnesemía- skortur á magnesíum.
- Ekki nægt blóðflæði í fótum.
Anti Leg Cramps samanstendur af blöndu af Magnesium Hydroxide sem upprunin er úr Dauðahafinu ásamt B6 vítamíni sem eykur upptöku þess og E vítamíni sem stuðlar að því að verja oxunaralagi.
Anti Leg Cramps má nota frá 12 ára aldri.
Frábendingar: einstaklingar með nýrnasjúkdóma.
Geymist: á köldum og þurrum stað.
Notkun: 1-2 hylki á dag fyrir svefn.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
Sofðu betur á náttúrulegan hátt.
-
Flögur fyrir þreytta vöðva og liði.
-
Magnesium með róandi ilmkjarna olíum.