Good Night
MezinaEinstök blanda róandi jurta
Góður svefn er undirstaða góðrar heilsu en um það bil þriðjungi mannsævinnar er varið í svefn. Tímabundið svefnleysi getur m.a. valdið vanlíðan og þreytu á daginn og haft mikil áhrif á dagleg störf. Við eigum erfiðara með að einbeita okkur, getum verið þreytt og pirruð og rökhugsun skerðist, að auki geta ýmsir þættir haft áhrif á svefngæði okkar, bæði líkamlegir og andlegir. Margir kannast jafnframt við mikla þreytu í tengslum við ferðalög milli tímabelta og/eða vaktavinnu en ásamt því getur mataræði að auki haft áhrif.
Good Night er einstök vara sem inniheldur amínósýruna L-tryptófan og blöndu af jurtum sem allar eru þekktar fyrir að hafa róandi áhrif á líkamann.
L- tryptófan er amínósýra sem við fáum úr ýmsum matvælum, m.a. úr eggjum, osti, laxi, hnetum, fræjum, kalkúnakjöti og tofu. Þessi amínósýra er lífsnauðsynleg þar sem líkaminn okkar framleiðir hana ekki sjálfur. L- tryptófan er m.a. byggingarefni svefnhormónsins melatóníns sem heilaköngullinn framleiðir og getur það því haft áhrif á svefn. L- tryptófan virkar róandi á miðtaugakerfið okkar en varan hefur það að markmiði að auka svefngæði.
Auk L- tryptófans inniheldur Good Night vel þekktar jurtir, svo sem Melissu sem hefur það að markmiði að hjálpa okkur að sofna ásamt lindarblómi og höfrum sem eru sérstaklega róandi. Blandan inniheldur einnig blöndu af B vítamínum sem eru sérlega mikilvæg fyrir starfsemi taugakerfisins og magnesíum sem er afar vöðvaslakandi.
Notkun: 2 töflur með vatni klst. fyrir svefn. Eins og með margar jurtir er ráðlagt að taka Good Night í nokkrar vikur samfellt til að ná fullri virkni. Sumir finna fljótt mun en aðrir þurfa lengri tíma.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
Hefur hjálpað þúsundum íslendinga með liðeymsli.
-
Styður við aukin svefngæði.
-
Magnesium með róandi ilmkjarna olíum.
-
Húðmjólk fyrir fullorðna en hún inniheldur magnesíum, lavender og kamillu.