Osteo Advance

/ Heilsuvörur / Vítamín & bætiefni / Osteo Advance

Osteo Advance

Natures Aid
Vörunúmer: 16000271
Pakkningastærð: 60 töflur
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir

Frábær blanda sem inniheldur nauðsynleg vítamín og steinefni

Osteo Advance inniheldur einstaka blöndu af vítamínum og steinefnum sem eru nauðsynleg fyrir líkamann okkar. Blandan inniheldur kalk og magnesíum sem stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina og tanna, ásamt K2 og D- vítamíni sem stuðlar að viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfsemi.

99% af kalkinu í líkamanum okkar er í beinunum og til þess að upptaka kalksins eigi sér stað er D- vítamín nauðsynlegt. D- vítamín sér um að taka kalkið úr blóðinu og Kvítamín (MenaQ7) sér svo um að kalkið bindist í beinunum.

Í þessari blöndu er kalk og magnesíum í hlutföllunum 2;1 en þannig er það öflugast og er þessi blanda frá Natures Aid því afar öflug.

  • Hentar 12 ára og eldri.
  • Vegan og hentar grænmetisætum.
  • Án erfðabreyttra efna, gervi-, lit- og bragðefna.
  • Mjólkur-, glútens-, laktósa-, hnetu-, salt-, sterkju- og sykurlaust.

Notkun: 2 töflur á dag með mat.

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Tengdar vörur…