Multi vítamín dropar fyrir börn
Natures Aid- Apótek
Bragðgóðir fjölvítamíndropar fyrir þau yngstu
Mikilvægt er að börn fái nægilega mikið af vítamínum og steinefnum fyrir eðlilegan vöxt og þroska.
Natures Aid fjölvítamín er góð blanda af öllu því helsta sem börnin okkar þurfa til að dafna sem best. Blandan inniheldur 14 nauðsynleg vítamín og steinefni.
- Ætlað börnum 3 mánaða til 5 ára.
- Hentar grænmetisætum.
- Án erfðabreyttra efna, gervi-, lit- og bragðefna
- Mjólkur-, glútens-, laktósa-, hnetu-, salt-, sterkju- og sykurlaust.
Notkun: 1 tsk (5 ml) fyrir 3 mánaða til 5 ára. Hristist fyrir notkun.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
D-vítamín munnúði með jarðaberjabragði.
-
Næra húðina og koma í veg fyrir þurrk og að viðkvæm húð flagni.
-
D vítamín munnúði fyrir börn frá 3 ára aldri.
-
D-vítamíndropar fyrir börn undir 5 ára.