Immune Health Oral Spray
Better YouMunnúði sem hefur það að markmiði að styðja við ónæmiskerfið
Nauðsynlegt er að hafa ónæmiskerfið í góðu lagi en helsta hlutverk þess að að verja okkur gegn svo sem bakteríum sem geta leitt til ýmissa kvilla. Ónæmiskerfið gerir líkama okkar kleift að starfa rétt og haldast í góðu standi, ef að ónæmiskerfið er á einhvern hátt í ólagi, þá eiga einstaklingar í meiri hættu á að verða fyrir ónotum og kvillum.
Immune Health er sérstaklega samsett blanda fyrir ónæmiskerfið sem inniheldur A, C og D- vítamín sem stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins ásamt selen sem stuðlar að viðhaldi eðlilegs hárs, húðar og nagla og sink sem stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina.
- Fyrir 11 ára og eldri
- Sykur-, glúten-, hveiti og mjólkurlaust, án litarefna
- Náttúrulegt appelsínu- og ferskjubragð
- Umhverfisvænar umbúðir
Munnspreyin eru sérstaklega hönnuð þannig að þau frásogist beint inn í blóðrásina og fari fram hjá meltingarveginum og tryggja þannig hámarks upptöku. Litlir dropar frásogast fljótt í munninum, en þetta er einföld og vísindalega sönnuð aðferð.
Notkun: 4 úðar á dag.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
D Lux 1000 er einfalt í notkun og bragðgott.
-
Hreint magnesium íblandað lindarvatni.
-
bragðgott vítamín sem tryggir góða upptöku.
-
Fjölvítamín, munnúði tryggir upptöku.