Fljótandi kókosolía

/ Matvara / Olíur / Fljótandi kókosolía
Fljótandi kókosolía
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir

Fljótandi kókosolía

Natures Aid
Vörunúmer: 16000249
Pakkningastærð: 250 ml
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir

Bragðlítil kókosolía sem er fullkomin í boostið eða matargerðina

Kókosolía er ein fárra fæðutegunda sem hægt er að kalla ofurfæðu en einstök samsetning fitusýra hennar getur haft jákvæð áhrif á heilsu okkar.

Flestar fitusýrur í fæðunni eru langar fitusýrur, en meðallöngu fitusýrurnar úr kókosolíunni meltast öðruvísi. Úr meltingarveginum fara þær beint í lifrina, þar sem þær eru ýmist notaðar sem auðleysanlegur orkugjafi eða breytt í ketóna. U.þ.b. 90% fitusýranna í kókosolíu eru mettaðar en nú er búið að sýna fram á að mettuð fita er skaðlaus.

Kókosolían frá Natures Aid er bragðlítil og ekki of þykk og er því upplögð í matargerðina. Einnig má bera olíuna á húð og í hárið.

  • Vegan og hentar grænmetisætum.
  • Án erfðabreyttra gervi- og litarefna.
  • Mjólkur-, glúten-, laktósa-, salt-, sterkju- og sykurlaust.

Liquid coconut oil frá Natures aid er verðlaunuð framleiðsla og árið 2014 var hún valin “Best Food & Drink Product” í heilsufæðisgeiranum (Health Food Business).

Notkun: Notist að vild. Gott þykir að fá sér 1-3 matskeiðar á dag.

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Tengdar vörur…