Effitan flugnafæla
Effitan flugnafæluúði er náttúrulegur og með mikla virkni. Hann virkar vel á moskítóflugur, mý, flugur, flær og skógarmítla í allt að 8 klukkutíma og það má nota hann á börn frá 3 mánaða aldri.
Náttúruleg innihaldsefni sem virka
Effitan inniheldur ekki DEET sem er í mörgum flugnafælum og skordýraeitri. Virku innihaldsefnin í Effitan eru m.a. kókosolía, Eucalyptus Citriodora (sítrónu júkalyptus) og citronella sem er ilmkjarnaolía og vel þekkt sem flugnafæla í kremum, úðum og kertum. Virkni Effitan er klínískt rannsökuð, bæði hjá Swiss Tropical Institute í Basel og Dr. Dautel Institut í Berlín
Fyrir alla fjölskylduna
Þar sem Effitan er náttúruleg skordýrafæla hentar hún fyrir alla fjölskylduna. Óhætt er að nota á meðgöngu og á börn frá 3 mánaða en berists á börn undir 3 ára aldri. Einungis þarf að varast að bera efnið ekki þar sem hægt er að setja það í augu og munn. Rannsóknir sýna að Effitan verndar í allt að 8 klukkustundir.
Frí á suðrænni sólarströnd
Við könnumst flest við hversu hvimleitt það getur verið að lenda í svöngum moskítóflugum í sólarfríinu. Að vera útbitin og að tapa sér í kláða er ekki góð skemmtun og getur í sumum tilfellum skemmt fríið. Effitan má nota að vild og ekki er verra ef við tökum nóg af B vítamíni nn líka en pöddurnar eru margar hverjar viðkvæmar fyrir lyktinni sem þetta vítamín gefur frá sér. Það er um að gera að taka það inn daglega og leyfa lyktinni af töflunum að dreifast um innandyra.
Stangveiði, golf, göngur og garðyrkja
Yfir sumartímann má segja að blíðunni fylgir fluga. Það er því þjóðráð að eiga Effitan í golftöskunni, bakpokanum og hvað þá í veiðitöskunni en mývargurinn getur hreinlega eyðilagt friðsæla veiðiferð. Það er líka þjóðráð að nota það þegar taka á til hendinni í garðinum.
Tengdar vörur…
-
Dregur úr kláða og eymslum eftir flugnabit.
-
Flugnafæla fyrir svæði þar sem er mikið um flugur.
-
Dregur úr kláða og róar eftir flugnabit.
-
Virkar mjög vel gegn moskító, mýflugum og skógarmýtlum.