Better You D1000 vegan munnúði

/ Heilsuvörur / Vítamín & bætiefni / Better You D1000 vegan munnúði
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir

Better You D1000 vegan munnúði

Better You
Vörunúmer: 16000372-1
Pakkningastærð: 50 ml
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir

D- vítamín gegnir lykilhlutverki í viðhaldi beina og tanna, stuðlar að upptöku kalks og fosfórs og er m.a. mikilvægt fyrir ónæmiskerfið og vöðvastarfsemi.

D1000 vegan munnúðinn veitir 1000IU (25 míkrógrömm) af D3- vítamíni í hverjum skammti. D1000 vegan inniheldur 100% vegan D3 vítamín sem unnið er úr jurtaríkinu og er það ekki prófað á dýrum. Umbúðir eru framleiddar úr kolefnisneikvæðum, plöntuvænum umbúðum.

D- vítamínskortur er afar algengur í vestrænum löndum en hann getur haft mjög alvarlegar afleiðingar til lengri tíma og skiptir þetta vítamín t.a.m. sköpum fyrir heilbrigt ónæmiskerfi og sterkar tennur og bein. Rannsóknir gefa þó til kynna að það gegni mun víðtækara hlutverki en talið var og það sé í raun grundvallarefni til að viðhalda heilsu og fyrirbyggja ýmsa kvilla. Vitað er um a.m.k. 100 mismunandi kvilla sem tengjast D- vítamínskorti.

Munnúðarnir frá Better You eru sérstaklega hannaðir þannig að þeir frásogist beint inn í blóðrásina og fari fram hjá meltingarveginum og tryggja þannig hámarks upptöku. Litlir dropar frásogast fljótt í munninum, en þetta er einföld og vísindalega sönnuð aðferð.

D1000 Vegan er afar handhægt og bragðgott

  • Hver úði gefur 25 míkrógrömm af D- vítamíni
  • Í hverju glasi eru 100 úðar eða um þriggja mánaða skammtur
  • Náttúrulegt piparmyntubragð
  • Hentar grænmetisætum
  • Hentar VEGAN
  • Hentar 8 ára og eldri

Þeim sem hættast er við D- vítamínskorti eru:

  • Ófrískar konur og konur með barn á brjósti
  • Einstaklingar komnir yfir fimmtugt
  • Fólk sem heilsu sinnar vegna verður að vera innandyra eða þeir sem hylja húð sína þegar þeir fara út
  • Grænmetisætur og vegan

Notkun: 1 úði á dag. 1 úði á dag gefur 1000 IU/25 μg af D- vítamíni. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Tengdar vörur…