Artic Star Marine Collagen

/ Heilsuvörur / Vítamín & bætiefni / Artic Star Marine Collagen
sæbjúgu
Dreifingaraðili: Distica

Artic Star Marine Collagen

Artic Star
Vörunúmer: SAE048127
Pakkningastærð: 90 stk.
Dreifingaraðili: Distica

Artic Star Marine Collagen með sæbjúgum og C vítamíni

Sæbjúgu hafa lengi verið þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika sína á mannslíkamann. Sæbjúgu innihalda hátt magn af kollageni sem er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans og er að finna í öllum liðum, liðamótum, vöðvum, sinum og beinum mannslíkamans. Einnig er kollagen afar stór hluti af húð, hári og nöglum. Að auki innihalda sæbjúgu hátt magn af próteini sem og innihalda yfir 50 tegundir af næringarefnum.

Artic Star Marine Kollagen er framleitt úr Atlantshafs-þorskroði og sæbjúgum sem veidd eru í Norður-Atlantshafinu. Hylkin innihalda að auki C vítamín sem styður við eðlilega myndun kollagens sem styrkir brjósk, bein og húð líkamans. C vítamín stuðlar einnig að viðhaldi eðlilegrar starfsemi taugakerfisins og ónæmiskerfisins, ásamt því að draga úr þreytu og lúa.

Artic Star Marine Collagen inniheldur kollagen, chondroitin súlfat, amínósýrur, mucopolysaccharide, saponins og C vítamín.

Notkun: 3 hylki á dag með vatnsglasi.

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Tengdar vörur…