Probi Original
ProbiProbi Original inniheldur að minnsta kosti 10 milljarða lifandi gerla
Mjólkursýrugerlar eru afar mikilvægir fyrir þarmaflóruna sem spilar lykilhlutverk í lífi okkar og heilsu. Til þess að viðhalda heilbrigðri flóru er mikilvægt að tileinka sér hollt og gott mataræði ásamt því að taka reglulega inn mjólkursýrugerla í formi bætiefna.
Probi Original er fæðubótarefni sem inniheldur mjólkursýrugerilinn Lactobacillus plantarum 299v sem er harðger gerill. Gerillinn hefur eiginleika til að fjölga sér í meltingarvegi og hefur þ.a.l. það að markmiði að draga úr óþægindum tengdum maga og meltingu.
Probi Original er framleitt af Probi AB í Svíþjóð og byggir á fjölda rannsókna sem gerðar hafa verið á undanförnum 25 árum.
- Hentar barnshafandi konum og konum með barn á brjósti.
- Hentar börnum eldri en 6 mánaða, hægt að opna hylkin og bæta út á grautinn.
- Hentar samhliða sýklalyfjum, látið líða 2 klst. milli inntöku sýklalyfja og Probi Original.
Notkun: 1 hylki á dag með mat.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
Inniheldur mjólkursýrugerilinn Lactobacillus plantarum 299v.
-
Öflugustu meltingarensím Enzymedica.
-
bragðgott vítamín sem tryggir góða upptöku.