Clean Ears

/ Lækningavörur / Eyrnadropar / Clean Ears
clean ear sprey
Dreifingaraðili: Distica

Clean Ears

Naveh pharma
Vörunúmer: 7091
Pakkningastærð: 15 ml
Dreifingaraðili: Distica

Clean Ears leysir upp eyrnamergClean Ears er nýjung í losun eyrnamergs, það  leysir upp og fjarlægir eyrnamerg og fituefni sem myndast í hlustunargöngum.

Clean Ears er mjög virkt og hefur verið klíniskt prófað/sannreynt sem árangursrík meðferð til að losna við umfram eyrnamerg.  Ef Clean Ears er notað reglubundið t.d. 2-3 sinnum í viku þá kemur það í veg fyrir að eyrnamergur safnist upp og stífli hlust.

Clean Ears hefur tvennskonar virkni, annars vegar þvær það hlustunargöngin og hinsvegar leysir það upp eyrnamerg.  Efnið er hraðvirkt, öruggt og auðvelt í notkun.  Með því að nota Clean Ears reglulega má fjarlægja eyrnamerginn úr hlustunargöngunum á fáeinum tímum eða dögum (fer eftir magni).  Þegar eyrnamergurinn hefur verið leystur upp lekur hann fram í hlustina þannig að hægt er að hreinsa hann í burtu með eyrnapinna án þess að setja pinnann langt inn í eyrað.

Notkun: Úðið einu sinni í hvort eyra 3-5 sinnum á dag þar til eyrnamergurinn hefur verið leystur upp.  Notist síðan eftir þörfum, til að viðhalda góðu ástandi.

Kostir CleanEars

  1. Tvöföld virkni, þvær og leysir upp
  2. Auðvelt í notkun
  3. Öruggt og áhrifaríkt fyrir alla aldurshópa
  4. Klínískar rannsóknir
  5. Vottað og CE merkt.

Innihaldsefni: Olivaxol™, olífu- , piparminntu- og parafin olía.

CleanEars skal ekki nota á fólk með áverka á eyra eða hlust.

Geymist þar sem börn ná ekki til. Varist að efnið berist í augu.

Notist aðeins útvortis.

Tengdar vörur…