Otrivin Comp
Otrivin Comp er notað til meðhöndlunar á einkennum nefstíflu (þrútinnar nefslímhúðar) og nefrennslis af völdum kvefs.
Fullorðnir: 1 úðun í hvora nös allt að þrisvar á sólarhring. Milli tveggja skammta skulu líða að minnsta kosti 6 klukkutímar. Ekki nota fleiri en þrjár úðanir í hvora nös á sólarhring.
Meðferð skal ekki vara lengur en í 7 daga.
Til að draga úr líkum á aukaverkunum er mælt með því að meðferð sé hætt þegar dregið hefur úr einkennum og einnig áður en 7 sólarhringar, sem er hámarkslengd meðferðar, eru liðnir.
Ekki er mælt með notkun Otrivin Comp fyrir börn og unglinga yngri en 18 ára þar sem ekki liggja fyrir nægjanlegar upplýsingar. Takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um notkun hjá sjúklingum eldri en 70 ára.
Otrivin/Otrivin Junior/Otrivin Comp/Otrivin Menthol nefúði, lausn. Inniheldur Xýlómetazólínhýdróklóríð. Bólgur og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Tengdar vörur…
-
Strepsils er við eymslum og ertingu í hálsi.
-
Panodil Zapp töflur eru verkjastillandi og hitalækkandi.
-
Við bólgum og aukinni slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki.
-
Panodil Hot er verkjastillandi og hitalækkandi.