Bio-Kult Everyday
ProtexinSérhönnuð góðgerlablanda fyrir þarmaflóruna
Bio-Kult Everyday er sérhönnuð góðgerlablanda sem hefur það að markmiði að byggja upp öfluga þarmaflóru og styðja við eðlilega virkni ónæmiskerfisins. Hylkin innihalda 14 tegundir sérvaldra frostþurrkaðra gerlastofna og er jafnframt ein af fáum góðgerlablöndum sem innihalda jafn marga gerlastofna. Mikilvægt er að huga að góðri flóru og eru góðgerlar einstaklega mikilvægir fyrir alla.
- Hentar barnshafandi konum og mjólkandi mæðrum.
- Inniheldur soya og mjólk í mjög litlu magni.
- Geymist við stofuhita á þurrum stað.
- Leitið ráðlegginga hjá lækni áður en fæðubótarefnið er gefið börnum undir 12 ára aldri.
Bio-Kult góðgerla má taka á sama tíma og sýklalyf en mælt er með að Bio-Kult sé tekið 1-2 klst. eftir inntöku sýklalyfjanna fyrir bestan árangur. Mælt er með að taka Bio-Kult í að minnsta kosti tvær vikur eftir að notkun sýklalyfja er hætt.
Notkun: Fyrir fullorðna eru 2 hylki með mat. Börn yfir 12 ára er 1 hylki á dag með mat. Opna má hylkin og dreifa út á mat eða bæta í þeyting.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
Sérhönnuð góðgerlablanda fyrir þarmaflóruna og viðkvæm svæði.
-
Háþróuð þrívirk formúla fyrir þvagrásina.
-
Öflugustu meltingarensím Enzymedica.