Better You D400 junior

/ Heilsuvörur / Vítamín & bætiefni / Better You D400 junior
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir

Better You D400 junior

Better You
Vörunúmer: 16000239
Styrkleiki: 400 a.e.
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir

Better You D400 Junior er munnúði með piparmintubragði fyrir börn frá 3 ára aldri

Hver einasta fruma líkamans þarf D- vítamín og það er jafnframt eina vítamínið sem við þurfum að fá á bætiefnaformi alla ævi.

Skortur á D- vítamíni tengist yfir 100 sjúkdómseinkennum og getur það m.a. komið fram í lélegri beinheilsu og skemmdum tönnum því það sér um að frásoga kalkið úr blóðinu til að það nýtist sem best en 99% af kalki er að finna einmitt í beinum og tönnum.

D400 frá Better You er til fyrir alla aldurshópa og er D 400 – junior hugsað fyrir börn frá þriggja ára aldri. D- vítamín munnúðinn frá Better You er hentugur valkostur fyrir börn sem eiga erfitt með að innbyrða töflur eða hylki ásamt því að vera án gervi- og litarefna.

D- vítamín:

  • Stuðlar að viðhaldi heilbrigði beina og tanna
  • Styður við heilbrigt ónæmiskerfi
  • Stuðlar að viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfsemi

Ráðlagðir dagskammtar af D- vítamíni skv. Landlæknisembættinu:

Skv. Landlæknisembættinu eru efri mörk ráðlagðrar neyslu 100 μg á dag (4000 AE) fyrir fullorðna, 50 μg (2000 AE) fyrir börn eldri en eins árs að tíu ára aldri og 25 μg (1000 AE) fyrir ungbörn að eins árs aldri. 

Munnspreyin eru sérstaklega hönnuð þannig að þau frásogist beint inn í blóðrásina og fari fram hjá meltingarveginum og tryggja þannig hámarks upptöku. Litlir dropar frásogast fljótt í munninum, en þetta er einföld og vísindalega sönnuð aðferð.

Umbúðir gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum.

Notkun: 1 úði á dag. Hver úði inniheldur ráðlagðan dagskammt fyrir börn, 400 a.e./10 μg. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

 

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Tengdar vörur…