Settu heilsuna í forgang

/ Settu heilsuna í forgang

Ávallt er mikilvægt er að huga að heilsunni og sérstaklega núna á tímum kórónaveirunnar. Svefn, hreyfing, mataræði og andleg heilsa skipta þar mestu máli, ásamt því að huga vel að því hvernig styrkja ónæmiskerfið.

BetaglucanTími til að hlúa að okkur sjálfum                                                                                       
Á tímum sem þessum þar sem mikil óvissa ríkir í umhverfi okkar sem hefur tekið miklum breytingum með tilheyrandi takmörkunum, hefur líklega aldrei verið jafn mikilvægt fyrir okkur að hlúa vel að okkur sjálfum. Öll gerum við okkar besta við að fylgja fyrirmælum sérfræðinga til að verja okkur og þá sem eru viðkvæmir gegn þessari nýju veiru sem hefur breytt okkar daglega lífi frá því sem áður var.

 

Í þessum streytuvaldandi aðstæðum er lykilatriði að missa ekki dampinn og reyna að viðhalda heilsusamlegu líferni og styrkja með því varnir líkamans.  Takmarkanir á hreyfingu, útiveru og þess að njóta dagsbirtunnar geta haft slæm áhrif á okkur, bæði líkamlega og andlega.  Sólin er mikilvægur hlekkur í að tryggja að við fáum nægar D-vítamín birgðir, en skortur á dagsbirtu getur einmitt verið ávísun á depurð.

Nægur svefn, hollur matur og dagleg hreyfing eru gríðarlega mikilvægir þættir í að byggja upp og viðhalda sterku ónæmiskerfi, en andleg næring spilar einnig stærra hlutverk en marga grunar.

Uppbyggileg samskipti og allt það sem nærir okkur andlega eins og umhyggja, virðing, skilningur, stuðningur, þakklæti og traust hefur jákvæð áhrif á heilsuna.  Öll þurfum við að upplifa það að við skiptum máli og að okkur sé sýnd virðing og einnig er nærandi að gefa af sér til annara. Ef að viljinn er fyrir hendi þá er það bæði einfalt og ódýrt að tileinka sér jákvæðan lífsstíl. Iðkun hugleiðslu eykur andlega vellíðan og um leið viðnám gegn streitu.

Við berum ábyrgð á heilsu okkar og getum gert ýmislegt til efla okkur:

  • Veldu fjölbreytt og hreint mataræði
  • Hreyfðu þig reglulega
  • Njóttu þess að vera úti í dagsbirtunni
  • Hugaðu að andlegri næringu
  • Passaðu upp á góðan nætursvefn
  • Taktu inn mikilvæg bætiefni

Beta glúkan styður við ónæmiskerfið á náttúrulegan hátt
Heilbrigður lífsstíll og góð næring eru mikilvægustu þættirnir fyrir heilsuna og varnir líkamans. Við þurfum fjölbreyttan og næringarríkan mat til að líkaminn fái öll þau næringarefni sem hann þarf á að halda en einnig er hægt að tryggja það með því að taka inn bætiefni. Jurtir og önnur náttúruefni hafa verið notuð í gegnum aldirnar til að bæta heilsu okkar og efla varnir líkamans og hafa mörg af þessum náttúruefnum verið rannsökuð og virkni þeirra staðfest.

Beta Glucan Immune support+ er dæmi um háþróuð bætiefni frá Natures Aid sem inniheldur afar öfluga blöndu af jurtum, vítamínum og steinefnum sem efla ónæmiskerfi líkamans og varnir okkur gegn sýkingum.

Beta-Glucans

Beta glúkan er í aðalhlutverki í þessari ónæmisstyrkjandi blöndu en það er tegund af uppleysanlegum trefjum sem geta haft jákvæð áhrif ónæmiskerfið og einnig á kólesteról og hjartaheilsu. Beta glúkan finnst m.a. í heilkorni, höfrum, byggi og sumum sveppategundum eins og maitake og reishi sveppum.

Beta Glucan Immune support inniheldur einnig aðrar þekktar lækningajurtir eins og hvítlauk sem er þekktur fyrir að veita vörn gegn vírusum og yllir sem hefur öldum saman verið notuð til að styrkja ónæmiskerfið.

Önnur virk innihaldsefni eru til að mynda steinefnin Selen og Sínk, ásamt A-, D-, og C vítamínum sem öll eiga það sameiginlegt að vera mikilvæg fyrir varnir líkamans.

Beta glúkan getur haft jákvæð áhrif ónæmiskerfið og einnig á kólesteról og hjartaheilsu.

Fæst í apótekum, heilsubúðum og Hagkaupum.