Segðu öllum frá þegar þú hættir að reykja
Þess vegna er ráðlegt að segja öllum sem þú umgengst að þú sért að hætta að reykja
Ef þú þarft einungis að bera ábyrgð gagnvart sjálfri/sjálfum getur verið erfitt að halda reykbindindi. Segðu þess vegna öllum sem þú umgengst frá því að þú sért að hætta að reykja til þess að þeir gæti þess að freista þín ekki þannig að þú fallir aftur í reykingagildruna.
Hugsanlegt er að þú álítir að það sé skynsamlegt að segja ekki frá því að þú ætlir í reykbindindi vegna þess að þú gætir fallið. Einmitt þess vegna ættir þú að segja öllum sem þú umgengst frá reykleysisáformum þínum. Því meira sem rætt er um áform þín um reykbindindi þess skuldbundnari mun þér finnast þú til að láta það verða að veruleika.
Þú þarft þó að byrja á því að sannfæra sjálfa/sjálfan þig um að þú sért á réttri braut. Hafðu í huga alla heilsufarslegu kostina sem reykleysi hefur í för með sér og hugsaðu um fjárhæðina sem þú sparar sem þú getur notað á mun skemmtilegri hátt. Jafnvel þótt vegferðin reynist stundum erfið skaltu ávallt hafa í huga að þú ert að hætta að reykja fyrir sjálfa/sjálfan þig en ekki til að refsa þér.
Reykingafélagarnir
Þeir sem þú reykir venjulega með, hvort sem það er í vinnunni, á æfingu eða annars staðar eru hugsanlega mestu ógnvaldar þínir þegar litið er til reykbindisins, vegna þess að þeir átta sig ekki alveg á því að þú ert á annarri vegferð sem ekki felur í sér daglegar reykingar. Gerðu þeim ljóst að þú ætlir ekki að reykja og segðu nei ef þeir spyrja hvort þú viljir ekki að minnsta kosti skreppa með þeim út fyrir. Líkurnar á því að þú látir freistast eru nefnilega miklar. Ef þér tekst að hætta eru miklar líkur á að það verði reykingafélögum þínum hvatning til að hætta einnig að reykja.
Fjölskyldan
Þér finnst áreiðanlega þú vera mest skuldbundin/skuldbundinn gagnvart fjölskyldumeðlimum þínum og þess vegna borgar sig að segja bæði maka og börnum frá reykleysisáformunum. Ef fjölskyldan er farin að hlakka til að búa við reyklaust umhverfi jafnt úti sem inni og makinn að kyssa reyklausan ástvin mun þér finnast þú skuldbundnari til að halda reykbindindið til þess að þú valdir ekki þínum nánustu vonbrigðum. Til þess að vera enn skuldbundnari getur þú hugsanlega lofað fjölskyldunni skemmtiferð eða einhverju öðru til skemmtunar fyrir peningana sem þú sparar við að hætta að reykja – þá verður víst ekki aftur snúið.
Vinirnir
Vinirnir, hvort sem þeir reykja eða ekki, geta haft mikil áhrif á gjörðir og hegðun. Þetta á einnig við um reykingar. Hugsanlegt er að þú þurfir að halda þig tímabundið frá stöðum og viðburðum þar sem reykt er – og ef til vill þarftu að breyta um venjur um tíma. Segðu þess vegna vinunum að þú verðir hugsanlega minna fyrir að stunda skemmtanalíf en venjulega en að þú viljir gjarnan gera eitthvað annað sem dreifir athyglinni frá sígarettunum. Þú gætir til dæmis boðið þeim að koma með þér á æfingu eða í göngutúr til þess að reykbindindið verði ekki til þess að þú einangrir þig frá félagslífinu. Þannig geta vinir þínir einnig lagt rótgrónar venjur á hilluna.
Vinnufélagarnir
Þú eyðir stórum hluta lífsins með vinnufélögum þínum og þess vegna er mikilvægt að þú látir þá einnig vita um áform þín um að hefja nýtt líf. Það er hugsanlega ekki óvenjulegt að þið ræðið vinnuna yfir sígarettu og ef til vill mjög eðlilegt að þið farið út fyrir til að reykja eftir hádegisverðinn. Gerðu þeim ljóst að þú ætlir að gera eitthvað annað en að þú viljir að sjálfsögðu gjarnan taka reyklaust hlé með þeim.
Tóbakssalinn
Þú ættir einnig að segja þeim sem þú kaupir venjulega sígarettur af að þú sért að hætta að reykja, þ.e.a.s. ef þú er fastur viðskiptavinur í söluturni eða því um líkt. Ef sá sem þú verslar venjulega við veit að þú ert hætt/hættur að reykja er nefnilega mjög vandræðalegt að biðja um pakka af sígarettum eftir að hafa verið reyklaus um tíma.