Vegan Health munnúði

/ Heilsuvörur / Vítamín & bætiefni / Vegan Health munnúði
vegan munnúði
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir

Vegan Health munnúði

Better You
Vörunúmer: 16000354
Pakkningastærð: 24 ml
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir

Byltingarkennd nýjung frá Better You og sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum

Vegan Health munnsprey er sérstaklega samsett fyrir þá sem eiga erfitt með að taka upp B12 vítamín og járn úr fæðunni og þá sem ekki neyta dýraafurða en í því eru fjögur mikilvæg bætiefni.

Inniheldur:

D3 vítamín, B12 (methylcobalamin & adenozylcobalamin) járn og joð.

Efnin frásogast gegnum slímhúð í munni og þannig er alfarið sneitt framhjá meltingarfærunum, hámarks upptaka er tryggð og magaónot úr sögunni.

  • Þægilegt til inntöku – hröð og mikil upptaka
  • Hentar öllum eldri en 3 ára
  • Öruggt á meðgöngu og fyrir konur með barn á brjósti
  • Hentar vegan og grænmetisætum
  • Náttúrulegt berjabragð
  • Umbúðir gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum

 

Einkenni lágs járngilda

Lág járngildi er einn algengasti næringarefnaskortur í heiminum og snertir u.þ.b. 25% jarðarbúa. Það eru þó nokkur vel þekkt og algeng einkenni skorts sem gott er að vera vakandi yfir:

  • Orkuleysi
  • Svimi & slappleiki
  • Föl húð
  • Andþyngsli
  • Minni mótstaða gegn veikindum
  • Handa- og fótkuldi

Ýmsir kvillar geta einnig valdið skorti þannig að það er ráðlagt að leita læknis þegar grunur leikur að við þjáumst af lágum gildum.

Af hverju lendum við í skorti?

Ástæða lágs járn gilda er oftast vegna ónógs járns í fæðunni, blóðmissis, ákveðinna líkamlegra kvilla, aukinnar járnþarfar (t.d. vegna meðgöngu) og vegna lélegs frásogs. Allir þurfa að huga að næringunni og passa að fá öll næringarefni úr matnum eins og fremst er kostur. Við lifum ekki í fullkomnum heimi og oft er erfitt að næra sig fullkomlega en það getur skapað vandræði í meltingunni sem veldur því að við frásogum ekki öll næringarefni nógu vel. Sumir eru svo hreinlega ekki nógu duglegir að borða járnríkan mat eins eins og rauðrófur, rautt kjöt, grænt grænmeti, baunir, hnetur, fræ o.fl.

Notkun: 4 úðar  á dag. Fjórir úðar daglega gefa 5mg af járni, 3000 ae af D- vítamíni, 6μg af B12 vítamíni og 150μg af joði. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

 

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Tengdar vörur…