Prógastró GULL
UAS LaboreatioriesPróGastró GULL inniheldur 15 milljarða góðgerla sama hafa jákvæð áhrif á meltinguna
Meginþorri heilbrigðra einstaklinga hafa svipaða þarmaflóru en hún þróast og dafnar alla ævi. Þarmaflóran ver okkur gegn óæskilegum örverum og hefur margskonar áhrif á heila- og taugakerfið. Öflug og vel samsett þarmaflóra er grunnurinn að sterku ónæmiskerfi og oftar en ekki er hægt að rekja ýmsa líkamlega sem og andlega kvilla til lélegrar þarmaflóru.
Ástæður þess að þarmaflóran okkar raskast má meðal annars rekja til inntöku sýklalyfja, mikils álags og streitu, neyslu á sykri og unnum matvörum, mikilli kaffidrykkju og fleiri lífsstílstengdra þátta.
PróGastró GULL
PróGastró Gull mjólkursýrugerlarnir eru afar öflugir en þeir innihalda 4 stofna af gall- og sýruþolnum góðgerlum. Einn af þeim er L. Acidophilus DDS®-1 eða asídófílus eins og við þekkjum hann en þetta er nafn á áhrifaríkum gerlastofni þar sem DDS®-1 viðbótin er afar mikilvæg fyrir ýmis hlutverk í starfsemi líkamans. Gerillinn hefur lengi verið þekktur fyrir heilsueflandi eiginleika sína en hann þolir hátt sýrustig í maganum ásamt því að margfalda sig í smáþörmunum þar sem hans er mest þörf. PróGastró Gull mjólkursýrugerlarnir hafa það að markmiði að byggja upp þarmaflóruna og bæta meltingu og hafa reynst afar vel fyrir þá sem þjást af hinum ýmsu kvillum, svo sem magaónótum.
Í hverju hylki af Prógastró Gull mjólkursýrugerlunum eru 15 milljarðar af gall- og sýruþolnum gerlastofnum sem hafa jákvæð áhrif á þarmaflóruna. Prógastró Gull er afar áhrifarík vara og aðlagast líkamsstarfseminni vel ásamt því að vera talin gagnleg fyrir alla aldurshópa.
Notkun: 1 hylki á morgnana með vatnsglasi. Auka má dagskammt upp í allt að 3 hylki á dag við sérstökum meltingarkvillum.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
Öflugustu meltingarensím Enzymedica.
-
Öflugir góðgerlar sem hafa það að markmiði að efla meltingarveginn.
-
Öflug blanda meltingarensíma.
-
Öflug meltingarensím sem henta öllum aldri.