Movicol Junior Neutral
NorgineMovicol junior er hægðalosandi lyf.
Movicol junior er til meðferðar á langvinnri hægðatregðu hjá börnum á aldrinum 2-11 ára. Meðferð má ekki standa yfir lengur en í 4 vikur.
Venjulegur upphafsskammtur er 1 stakskammtaílát á dag fyrir börn á aldrinum 2-6 ára og 2 stakskammtaílát á dag fyrir börn á aldrinum 7-11 ára. Skammta má auka eða minnka í þeim tilgangi
að ná reglubundnum mjúkum hægðum. Hámarksskammtur má ekki vera hærri en 4 stakskammtaílát á dag.
- Movicol bindur vatn og eykur þar með rúmmál hægðanna.
- Lyfið kemur þarmahreyfingum í eðlilegt horf og flýtir fyrir tæmingu þarmanna.
- Inniheldur nauðsynleg sölt í réttum hlutföllum til að koma í veg fyrir truflun á salt- og vökvajafnvægi líkamans.
- Umbrotnar ekki í meltingarvegi, frásogast ekki yfir í blóðrásina og skilst út úr líkamanum með hægðum.
- Hefur ekki áhrif á bakteríuflóru magans
1 poki blandast við 62,5 ml af vatni.
Það má geyma tilbúna blöndu í sólarhring í ísskáp.
Bragðlaust
Tengdar vörur…
-
Til meðferðar við verkjum og hita.
-
Movicol er notað til meðferðar á hægðatregðu.
-
Panodil Junior mixtúra er verkjastillandi og hitalækkandi.
-
Til notkunar fyrir ristilsspeglun.