Movicol - til meðferðar á langvinnri og þrálátri hægðatregðu - Artasan

Movicol

Dreifingaraðili: Distica

Movicol

Styrkleiki: Hvert stakskammtaílát inniheldur - Macrogol 3350 13,125 g, Natríumhýdrógenkarbónat 178,5 mg, Natríumklóríð 350,7 mg, Kalíumklóríð 46,6 mg
Pakkningastærð: 8 stk, 20 stk, 50 stk
Dreifingaraðili: Distica

Movicol er notað til meðferðar á langvinnri hægðatregðu og þrálátri hægðatregðu. Meðferð við hörðum uppsöfnuðum hægðum í ristli og/eða endaþarmi, staðfest með læknisskoðun á kvið og endaþarmi.

Langvinn hægðatregða: Fullorðnir: 1-3 stakskammtaílát á dag, háð einstaklingsbundinni svörun. Venjulega varir meðferð ekki lengur en 2 vikur, en ef nauðsyn krefur má endurtaka hana.

Þrálát hægðatregða: Fullorðnir: Innihald 8 stakskammtaíláta er leyst upp í 1 lítra af vatni, innbyrt á 6 klukkustundum. Venjulega varir meðferð ekki lengur en í 3 daga.

Sjúklingar með skerta hjartastarfsemi: Við meðferð á þrálátri hægðatregðu á að skipta skömmtum þannig að ekki séu innbyrt innihald fleiri en 2 stakskammtaíláta á klst.

Lyfjagjöf: Fyrir notkun á að leysa innihald hvers stakskammtaíláts upp í 125 ml af vatni. Börn: Ekki má nota lyfið fyrir börn yngri en 12 ára þar sem nægjanlegar upplýsingar um meðferð hjá börnum liggja ekki fyrir.

 

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.

Tengdar vörur…

Pöntun og dreifing: 412 7520

Starfsmenn

Fáðu aðstoð hjá starfsfólkinu okkar

Finna starfsmann

  • Artasan

    Kt: 620307-2380

    VSK númer: 093807

  • Heimilisfang

    Suðurhrauni 12a

    210 Garðabæ

  • Opnunartími

    Alla virka daga frá 9-16

  • Sími/Netfang

    Sími: 414 9200

    artasan@artasan.is

Sala og markaðssetning á samheitalyfjum, lausasölulyfjum og öðrum heilsuvörum