Lion’s Mane Plus

/ Heilsuvörur / Vítamín & bætiefni / Lion’s Mane Plus
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Fjarðarkaup
  • Heilsuhúsinu

Lion’s Mane Plus

New Nordic
Vörunúmer: F045179
Pakkningastærð: 30 stk
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Fjarðarkaup
  • Heilsuhúsinu

Lion’s Mane fyrir hugræna virkni, einbeitingu og minni.

Lion‘s Mane Plus frá New Nordic er einstök og öflug blanda sem sameinar náttúruleg efni, vítamín og joð, sérstaklega hönnuð til að styðja við vitsmunastarfsemi. Með sérstakri samsetningu af Lion’s Mane sveppi, strandfuru, langpipar og nauðsynlegum vítamínum, er Lion‘s Mane Plus þróað með það að markmiði að auka einbeitingu, minni og andlega skýrleika.

Lion‘s Mane sveppurinn, sem hefur náð gríðarlegum vinsældum á heimsvísu, er þekktur fyrir einstaka eiginleika sína til að styrkja heilsu heilans. Hann hefur verið notaður í aldanna raðir í austurlenskum lækningum og er nú álitinn ein af öflugustu náttúrulegu lausnunum til að styðja við heilastarfsemi.

Blandan inniheldur einnig joð, sem er mikilvægt næringarefni sem stuðlar að eðlilegri vitsmunastarfsemi, eins og að efla minni og einbeitingu, auk B-vítamína, sem eru lykilþættir í að viðhalda eðlilegri andlegri getu og draga úr þreytu. Sérstaklega má nefna pantóþensýru (B5), sem stuðlar að eðlilegri andlegri getu og því að draga úr þreytu og lúa.

Notkun: 1 tafla á dag með vatnsglasi.

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.