ElectroRice
Naveh- Apótek
ElectroRice er frábær lausn gegn ofþornun
ElectroRice er frábær vara til inntöku vegna ofþornunar sökum lausra hægða. ElectroRice tryggir hámarks upptöku á vökva til að bæta fyrir það vökvatap sem hefur átt sér stað.
Lausar hægðir er algengt vandamál, sérstaklega hjá börnum. Við slíkt ástand missir líkaminn afar hratt vökva og electrolíta sem eru honum lífsnauðsynlegir til þess að geta starfað eðlilega. Til að koma á eðlilegri starfsemi í líkamanum er grunnmeðferð við lausum hægðum að koma á vökvajafnvægi en þetta á sérstaklega við hjá börnum.
Hrísgrjónalausnin hefur það að markmiði að draga úr lausum hægðum og hægja á vökvatapi í líkamanum, ásamt því að sterkjugrunnurinn (í stað glúkósa) hefur þau áhrif að það verður hæg losun á glúkósamólíkúlum.
Blandan er unnin úr hrísgrjónum samkvæmt stöðlum Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Varan inniheldur Rice flour, Strawberry flavoring, Trisodium Citrate, Sodium Chloride, Methyl Cellulose, Sucraloze, Zinc Glucoonate.
ElectroRice er afar bragðgóð lausn en blandan er jafnframt góð næring og lykilinn að því að barn fáist til að drekka hana.
Notkun: Leysið upp eina pakkningu í 200ml af vatni. 5 skammtar á dag, 1 poki inniheldur 1 skammt. Hentar frá þriggja mánaða aldri, hafa skal samráð við lækni fyrir yngri hópa.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
Barnatannbursti fyrir börn 7 ára og eldri.
-
Til daglegrar hreinsunar á nefi ungbarna.