Dr.Frei Multivítamín+Bíótín

/ Heilsuvörur / Vítamín & bætiefni / Dr.Frei Multivítamín+Bíótín
drfreimultivitamin
Dreifingaraðili: Distica

Dr.Frei Multivítamín+Bíótín

Dr. Frei
Vörunúmer: 3758
Pakkningastærð: 20 freyðitöflur
Dreifingaraðili: Distica

Dr.Frei Multivítamín + Bíótín freyðitöflur
Fyrir orku og almenna heilsu!

Inniheldur vel samansetta blöndu af vítamínum sem stuðla að orku og eðlilegri virkni ónæmiskerfisins.

Innihaldsefni:
C-vítamín 75 mg
Níasín 20 mgPantóþensýra (PP) 10 mgE-vítamín 6,90 mgB1 vítamín 1,80 mgB6 vítamín 1,70 mgB2 vítamín 1,45 mgPro A-vítamín 0,50 mgA-vítamín 900 μgFótsýra 200 μgH- / D-vítamín / 50 μgB12 vítamín 5 μgD3 vítamín 5 μg

B vítamín (B1, B2, B6) taka þátt í efnaskiptum kolvetna, próteina og fitu ásamt því að stuðla að eðlilegri starfsemi taugakerfisins. B12 vítamín hefur mikla virkni en það hefur hlutverki að gegna við frumuskiptingu og stuðlar að eðlilegum orkugæfum efnaskiptum, ásamt því að draga úr þreytu og lúa.

A vítamín er nauðsynlegt fyrir þróun þekjufrumna og stuðlar að eðlilegri starfsemi hjartans, ónæmiskerfisins, og sjónar. D- vítamín stuðlar m.a að viðhaldi eðlilegra beina og tanna og hefur hlutverki að gegna við frumuskiptingu. C vítamín eykur upptöku járns og stuðlar að því að verja frumur fyrir oxunarálagi, stýrir umbrotum kolvetna, blóðstorknun og endurnýjun vefja. Einnig stuðlar C vítamín að eðlilegri myndun kollagens fyrir húð og tennur. E vítamín er lífeðlisfræðilegt andoxunarefni sem stuðlar að því að verja frumur fyrir oxunarálagi. Bíótín stuðlar að viðhaldi eðlilegs hárs og húðar. Saman vinna innihaldsefnin saman til að stuðla að almennri heilsu.

Inniheldur EKKI gerviliti, bragðefni né rotvarnarefni. Laktósafrítt og glútenlaust.

Notkun: Ein tafla á dag.

Geymsla: Halda skal umbúðunum vel lokuðum. Geymist á þurrum og köldum stað fjarri beinu sólarljósi, hita og raka, við hitastig undir 25 ° C. Geymið það þar sem börn ná ekki til. Geymslutími er tvö ár.

Dr. Frei er Svissneskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í bætiefnum, lækningatækjum og alshliðar stuðning við meiðsli. Freyðitöflu lína Dr. Frei er breið og sykurlaus lína fyrir almenna heilsu, ásamt því að vera sér hönnuð fyrir íþróttafólk, húð og hár umhirðu.

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótaefnum.  Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma og tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma á borð við flogaveiki, ofvirkan skjaldkirtil og sykursýki.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótaefni eiga ekki að koma í staðinn fyrir fjölbreytt og hollt mataræði.

Tengdar vörur…