Dr. Frei Collagen
Dr. FreiCollagen freyðitöflur – fyrir sterkari og heilbrigðari húð, hár og neglur!
Kollagen hefur það að markmiði að viðhalda vökva og mýkt í húðinni. Kollagen stuðlar að auki að því að endurnýja heilbrigðan húðvef og byggja nýjar húðfrumur ásamt því að styrkja húðina. Auk þess stuðlar kollagen að sterkari og heilbrigðara hári og nöglum. Kollagenið frá Dr.Frei er framleitt úr húð viltra djúpsjávarfiska og inniheldur 500 mg af vatnsrofnu fiskikollageni.
Inniheldur EKKI gerviliti, bragðefni né rotvarnarefni. Laktósafrítt og glútenlaust.
Hentar ekki börnum yngri en 14 ára. Konur sem eru barnshafandi eða eru að reyna að verða óléttar ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þær taka vítamín eða steinefni. Fæðubótarefnum er ætlað að bæta við mataræðið og ætti ekki að líta á það í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði og heilbrigðan lífsstíl.
Notkun: Ein tafla á dag.
Geymsla: Halda skal umbúðunum vel lokuðum. Geymist á þurrum og köldum stað fjarri beinu sólarljósi, hita og raka, við hitastig undir 25 ° C. Geymið þar sem börn ná ekki til. Geymslutími er tvö ár.
Dr. Frei er Svissneskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í bætiefnum, lækningatækjum og alshliðar stuðning við meiðsli. Freyðitöflu lína Dr. Frei er breið og sykurlaus lína fyrir almenna heilsu, ásamt því að vera sér hönnuð fyrir íþróttafólk, húð og hár umhirðu.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótaefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma og tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma á borð við flogaveiki, ofvirkan skjaldkirtil og sykursýki.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótaefni eiga ekki að koma í staðinn fyrir fjölbreytt og hollt mataræði.
Tengdar vörur…
-
Fyrir öflugt ónæmiskerfi.
-
Fjölvítamín fyrir almenna heilsu.
-
Fyrir öflugt taugakerfi.
-
Blanda af vítamínum og steinefnum.