Digest Spectum
EnzymedicaDigest spectrum fyrir alla sem glíma við fæðuóþol
Digest Spectrum styður sérstaklega vel við meltingu á glúteini, laktósa, kaseini, próteini og fenól, sem og grænmetis og bauna.
Fæðuóþol er yfirleitt til staðar vegna skorts á ákveðnum tegundum meltingarensíma og er misjafnt hvort óþolið nær til eins fæðuflokks eða fleiri. Afleiðingar óþols eru mismunandi og geta verið ansi víðtækar en það getur oft reynst erfitt að koma auga á hvað það er sem veldur þar sem einkennin eru að koma fram allt að 2-3 sólahringum eftir neyslu. Einkenni fæðuóþols geta verið heldur mörg en ýmist óþægindi og ónot í maga, vindgangur og uppköst.
Digest Spectrum hefur það að markmiði að bæta meltingu og frásog næringarefna sem og vinna gegn ónotum, lofti, uppþembu og einkennum fæðuóþols. Þessi meltingarvara er viðurkennd af Autism Hope Aliance.
- Án fylliefna, bindiefna eða annarra flæðiefna
- Mjólkur-, glúten og soyalaust
- Lítil hylki, hentar börnum
- Vegan
Enzymedica hefur einkaleyfi á aðferð sem kallast Therablend en þá er blandað mörgum stofnum ensíma sem vinna á mismunandi pH- gildum og ná þau þannig að melta hvert orkuefni mun betur og hraðar. Ensím sem unnin eru með þessari aðferð hafa mælst á bilinu 5-20 sinnum öflugri og vinna meira en sex sinnum hraðar en önnur leiðandi meltingarensím.
Notkun: 1-2 hylki fyrir hverja máltíð – eftir þörfum.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
Öflug meltingarensím sem henta öllum aldri.
-
Digest eru tvöfalt öflugri meltingarensím en Digest Basic.
-
Öflugustu meltingarensím Enzymedica.