Digest
EnzymedicaHver kannast ekki við að verða þreyttur eftir þunga máltíð?
Margir hverjir upplifa óþægindi og uppþembu í maga eftir þungar máltíðir en slíkt tengist að öllum líkindum skorti á meltingarensímum. Líkaminn framleiðir sjálfur meltingarensím sem brjóta niður fæðuna en margt getur orðið til þess að hann framleiði ekki nóg.
Afleiðingar vegna skorts á meltingarensímum geta verið afar víðtækar og hugsanlega finnum við fyrir öðrum einkennum en ónotum í maga. Digest er frábær kostur fyrir þá sem finna fyrir ónotum í maga og meltingu eftir máltíðir.
- Digest er tvöfalt öflugra en Digest Basic
- Án fylliefna, bindiefna eða annarra flæðiefna
- Mjólkur-, glúten og soyalaust
- Lítil hylki, hentar börnum
- Vegan
Enzymedica hefur einkaleyfi á aðferð sem kallast Therablend en þá er blandað mörgum stofnum ensíma sem vinna á mismunandi pH- gildum og ná þau þannig að melta hvert orkuefni mun betur og hraðar. Ensím sem unnin eru með þessari aðferð hafa mælst á bilinu 5-20 sinnum öflugri og vinna meira en sex sinnum hraðar en önnur leiðandi meltingarensím.
Notkun: 1 hylki fyrir hverja máltíð – eftir þörfum.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
Öflugustu meltingarensím Enzymedica.
-
Digest Spectrum hentar vel þeim sem glíma við fæðuóþol.
-
Öflug meltingarensím sem henta öllum aldri.