CYD drykkjarpróf
CYD eru drykkjarpróf til þess að athuga hvort að byrlunarefni hafi verið sett út í drykki. Einn dropi af drykknum er settur á prófið og liturinn segir til um hvort að drykkurinn sé öruggur eða ekki.
- Prófið greinir GHB og ketamín.
- Sumir drykkir geta veitt rangar jákvæðar niðurstöður t.d. þeir sem eru rauðir að lit.
- Ekki má setja prófið ofan í drykkinn.
- 5 próf eru í hverri pakkningu og hægt er að loka umbúðunum aftur eftir að þær hafa verið opnaðar.
- Í hverjum kassa eru 50 stk.
Fæst í apótekum, bensínstöðvum og á varlega.is.