C vítamín
Better YouLífsnauðsynlegt vítamín fyrir mannslíkamann
C vítamín er án efa lífsnauðsynlegt vítamín og gegnir fjölmörgum mikilvægum hlutverkum í starfsemi líkamans. Flestir þekkja hlutverk þess fyrir ónæmiskerfið og taka það inn sem bætiefni til að efla viðnám líkamans gegn hinum ýmsu kvillum. C vítamín er einnig mikilvægt fyrir myndun kollagens sem er eitt af byggingarefnum líkamans, fyrir betri upptöku og nýtingu á járni úr fæðunni og spilar stórt hlutverk sem verndandi andoxunarefni.
C vítamín munnúðinn frá Better You inniheldur að auki grænt te, B2 vítamín sem er gríðarlega mikilvægt vítamín fyrir orkubúskap fruma og selen sem er eitt hinna svokölluðu andoxunar næringarefna líkamans.
C vítamín blandan frá Better You er frábrugðin flestum C vítamínum á markaðnum þar sem það er í munnúðaformi sem gerir það afar hentugt í notkun. Munnúðinn skilar næringarefnum beint út í blóðrásina í gegnum slímhúð í munni.
- Fyrir 1 árs og eldri
- Vegan, sykur-, glúten- og hveitilaust og án litarefna
- Óhætt að nota á meðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur
- Náttúrulegt kirsuberja- og granateplabragð
- Umbúðir gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum
Notkun: 1-5 ára 1 sprey, 6-12 ára 2 sprey, 11-14 ára 3 sprey á dag, 15-17 ára 4 sprey, 18 ára og eldri 5 sprey á dag.
Ekki skal nota meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
Sérvalin blanda af B-vítamínum.
-
B12 munnúði.
-
Fjölvítamín, munnúði tryggir upptöku.
-
bragðgott vítamín sem tryggir góða upptöku.