B complete munnúði
Better YouSérvalin blanda af B vítamínum til að styðja við náttúrulega orkuframleiðslu
B complete inniheldur allar þær 8 tegundir af B vítamínum sem eru mikilvæg fyrir taugakerfið og vinna vel saman til að styðja við náttúrulegt orkuumbrot líkamans ásamt því að draga úr þreytu og lúa. B vítamín stuðla einnig að eðlilegri virkni ónæmiskerfis sem og eðlilegri sálfræðilegri starfsemi.
Munnúðinn frásogast í gegnum slímhimnu beint út í blóðrásina og auðveldar þannig upptöku á þessum efnum.
Öll vítamínin þjóna mikilvægu hlutverki við að viðhalda góðri heilsu, þau eru Tíamín (B1), Ríbóflavín (B2), Níasín (B3), Pantóþensýra (B5), Pýridoxín (B6), Bíótín (B7), Fólínsýra (B9) og B12 vítamín. B vítamín eru vatnsleysanleg vítamín sem gerir það að verkum að líkaminn geymir þau ekki og er því mikilvægt að taka inn B vítamín á hverjum degi, ef ekki er fengið nóg úr fæðunni.
- Náttúrulegt bragð af ferskjum, plómum og hindberjum
- Hröð og mikil upptaka
- Öruggt á meðgöngu og brjóstagjöf
- Hentar vegan, grænmetisætum og einstaklingum með glútenóþol
- Umbúðir gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum
Notkun: 4 úðar á dag fyrir fullorðna. 2 úðar á dag fyrir 12 ára og yngri. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
D Lux 1000 er einfalt í notkun og bragðgott.
-
B12 munnúði.
-
Fjölvítamín, munnúði tryggir upptöku.
-
bragðgott vítamín sem tryggir góða upptöku.