Viltu hætta að reykja?

/ Viltu hætta að reykja?

mynd1

Ertu enn á íhugunarstiginu að velta fyrir þér hvort ávinningur af því að leggja tóbakið á hilluna vegi þyngra en áskorunin sem þú stendur frammi fyrir með reykbindindi? Lestu þá áfram til að fá yfirlit um gríðarlegan heilsufarslegan ávinning sem þú kemur til með að uppskera frá fyrsta degi. Líkamsstarfsemin verður strax betri og það þýðir að aldrei er of seint að hætta að reykja. Samkvæmt danska landlæknisembættinu mun sextugur einstaklingur sem hættir að reykja lifa að meðaltali þremur árum lengur en annars. Hætti einstaklingur að reykja þrítugur getur hann séð fram á að lifa tíu árum lengur en ef hann hefði haldið áfram að reykja sem eru dýrmæt ár með vinum og ættingjum.

Heilsubætandi áhrif koma þegar fram tuttugu mínútum eftir að þú hefur drepið í sígarettunni
Blóðþrýstingur og hjartsláttur verður eðlilegur aftur næstum um leið og þú hefur drepið í síðustu sígarettunni og að 24 klst. liðnum hefur dregið úr hættu á blóðtappa og lungun eru sjálfkrafa byrjuð að hreinsa sig. Því lengur sem þú getur staðist að fá þér sígarettu þess betri verður líkamsstarfsemin. Jafnt og þétt koma enn fleiri kostir í ljós sem koma til með að vera enn meiri hvatning til að halda bindindið.

Betri blóðrás eftir þriggja daga reykbindindi
Súrefnisupptaka líkamans eykst og öndun verður auðveldari, lyktarskyn eykst á ný og að tveimur vikum liðnum verður blóðrásin orðin betri og geta lungnanna til að verjast sýkingum eykst. Þetta ferli heldur áfram næstu mánuði eftir að reykbindindi hefst.

Þú öðlast meiri ró
Eftir 3-12 mánaða reykleysi kemur þú til með að sofa betur á næturnar, hósta sjaldnar og öndun verður auðveldari. Þú hættir að upplifa göngu í stigum eins og fjallgöngu og kemur til með að hafa meira þol til að leika við börnin í leikjum sem krefjast áreynslu og búast má við að þreyta í fótum komi til með að segja fyrr til sín en mæði þegar þú ferð í hlaupatúr. Konur koma til með að eiga auðveldara með að verða þungaðar.

Hætta á blóðtappa og sumum krabbameinstegundum minnkar
Ef þú getur haldið upp á eins árs reykleysisafmæli getur þú glaðst yfir að hætta á blóðtappa hefur nú minnkað um helming og eftir fimm ár er hætta á sumum tegundum krabbameins orðin helmingi minni. Eftir 10-15 ára reykleysi mun hætta á blóðtappa vera orðin jafn mikil og hjá þeim sem hafa aldrei reyk og hættan á krabbameini í loftvegum verður næstum jafn lítil og hjá þeim sem hafa aldrei reykt.

Að lokum má alls ekki gleyma að nefna umhverfisáhrifin
Þegar þú hættir að reykja stöðvar þú einnig óbeinar reykingar sem þínir nánustu verða fyrir. Jafnvel þótt þú hafir eingöngu reykt á heimilinu þegar þú varst alein/aleinn heima eða í sérherbergi hafa agnir úr reyknum verið til staðar og verið skaðlegar umhverfinu. Bæði fjölskylda og vinir reykingafólks verða að meira eða minna leyti fyrir skaðlegum efnum í reyknum. Eftir því sem þú heldur reykbindið lengur muntu verða vör/var við æ meiri ávinning af að anda að þér hreinu lofti.