Mjólkursýrugerlar sem henta allri fjölskyldunni
Þorbjörg Hafsteinsdóttir næringarþerapisti hefur lengi notað vörulínu Probi og mælir heilshugar með fyrir alla.
Í meltingarveginum lifa trilljónir baktería og eru flestar þeirra staðsettar í ristlinum. Þessar bakteríur köllum við þarmaflóru en þær sinna ýmsum afar mikilvægum hlutverkum í líkama okkar. Öflug þarmaflóra er forsenda heilbrigðar starfsemi meltingarfæranna ásamt því að hafa góð áhrif á ónæmis-, tauga- og hormónakerfið. Þarmaflóran ver okkur jafnframt gegn óæskilegum örverum og sýklum og hefur margskonar jákvæð áhrif á heilsu okkar almennt. Til þess að viðhalda öflugri flóru er mikilvægt að tileinka sér hollt og gott mataræði ásamt því að innbyrða reglulega mjólkursýrugerla í formi bætiefna.
Vöndum valið á mjólkursýrugerlum
Mjólkursýrugerlar eru hluti af örlífverum þarmanna en þeir eru eins ólíkir og þeir eru margir og með mismunandi virkni. Mjólkursýrugerla má ýmist finna í fæðu og meltingarvegi mannsins en þeir hafa heilsueflandi áhrif á líkamann með því eða efla meltingu og frásog næringarefna. Þegar velja á mjólkursýrugerla til inntöku er ekki úr vegi að skoða magn gerla sem hvert hylki inniheldur sem og virkni og eru því gerlarnir frá Probi AB kjörin viðbót en þeir innihalda 10 milljarða lifandi mjólkursýrugerla í hverju hylki.
Einkaleyfisvarðir gerlar frá Probi
Sænska fyrirtækið Probi AB var stofnað fyrir 30 árum síðan í kringum merkilega uppgötvun á mjólkursýrugerlinum Lactobacillus plantarum 299v. Gerillinn sýndi sig vera sérlega harðger og hefur eiginleika til að fjölga sér í meltingarvegi og styrkja þar með varnir okkar og draga úr óþægindum tengdum maga og meltingu. Probi AB er í dag leiðandi á heimsvísu í rannsóknum á mjólkursýrugerlum og með alheimseinkaleyfi á LP299V gerlinum, ásamt því að vera þeir einu sem innihalda gerilinn í vörum sínum á Íslandi. Probi vörurnar eru fjórar talsins og eiga þær allar það sameiginlegt að hafa jákvæð áhrif á þarmaflóruna og koma í veg fyrir meltingaróþægindi. Því má segja að allir í fjölskyldunni geti fundið eitthvað við sitt hæfi.