Hugum að góðri meltingu með Digest meltingarensímum
Ensím taka þátt í hverju einasta efnafræðilega ferli sem á sér stað í líkamanum, meðal annars að hámarka upptöku næringarefna í líkamanum ásamt því að hjálpa til við að breyta fæðu í orku. Líkaminn framleiðir meltingarensím sjálfur en margt getur orðið til þess að hann framleiði ekki nægilega mikið. Afleiðingar vegna skorts á meltingarensímum geta verið afar víðtæk og hugsanlega finnum við fyrir öðrum einkennum en ónotum í meltingu, sumir hverjir verða svo sem varir við húðvandamál, eymsli í liðum og jafnvel andleg heilsuvandamál. Ensím í bætiefnaformi eru einstakur kostur og hafa það að markmiði að koma í veg fyrir skort ásamt því að draga úr einkennum ef skortur gerir vart við sig. Að auki hafa ensím í formi bætiefna reynst afar vel fyrir þá sem glíma við hvers konar fæðuóþol. Að taka inn meltingarensím getur haft margvísleg jákvæð áhrif á líkamsstarfsemina umfram bætta meltingu.
Byrjaði að taka Digest Basic og þá var ekki aftur snúið
Lína Birgitta, 32 ára áhrifavaldur og eigandi Define The Line fatalínunnar hefur tekið inn Digest meltingarensímin í nokkur ár og segir þau hafa breytt lífi sínu. Lína Birgitta hefur verið að taka inn Digest Basic, sem eru fyrir væg meltingarvandamál og hefur það reynst gríðarlega vel fyrir hana. Hún segist einnig hafa í gegnum tíðina verið mjög opin fyrir að prufa allskyns bætiefni sem tengjast meltingunni, vegna magakvilla sem hún er að kljást við en það var ekki fyrr en hún prufaði Digest Basic sem hún byrjaði að finna fyrir alvöru mun. „Ég kynntist Digest vörunum fyrir um það bil 5 árum síðan og gat ekki annað en prófað þær, eftir það þá var ekki aftur snúið. Ég byrjaði að finna mikinn mun á mér strax, en ég finn aðallega fyrir að ég verð léttari í maganum eftir máltíðir, ekki fyrir þessari uppþembu og líður almennt mun betur en það skiptir mig ótrúlega miklu máli. Ég hef einnig verið að taka inn Digest Spectrum þegar ég veit að ég er að fara að borða glúten, en það er sérstaklega hannað fyrir þá sem eru með fæðuóþol. Ég er með glútenóþol og Digest Spectrum gerir það að verkum að ég höndla það mun betur, sem er frábær kostur.‘‘ segir Lína Birgitta um tilkomu Digest meltingarensímanna.
„Ég kynntist Digest vörunum fyrir um það bil 5 árum síðan og gat ekki annað en prófað þær, eftir það þá var ekki aftur snúið. Ég byrjaði að finna mikinn mun á mér strax, en ég finn aðallega fyrir að ég verð léttari í maganum eftir máltíðir, ekki fyrir þessari uppþembu og líður almennt mun betur.” – Lína Birgitta
Lína Birgitta mælir með Digest meltingarensímum fyrir alla, sértaklega um hátíðirnar
Mælt er með því að taka eina töflu fyrir eða með máltíð, en hins vegar getur það verið breytilegt eftir hverjum og einum einstakling. Sumum nægir að taka ensím einungis þegar um er að ræða ákveðnar máltíðir, svo sem kjöt, pasta, mjólkurvörur eða aðrar þungar máltíðir, á meðan aðrir þurfa að taka ensím með eða fyrir hverja máltíð til þess að finna árangur. „Ég tek ensímin rétt fyrir máltíð eða strax eftir ef ég gleymi að innbyrða þau. Persónulega elska ég að taka hylkin með kvöldmatnum þar sem að sá matur er aðeins þyngri en í hádeginu. Í rauninni myndi ég mæla með Digest fyrir alla sem vilja hjálpa meltingunni og sérstaklega fyrir þá sem finna fyrir magaónotum eftir máltíðir og vilja koma í veg fyrir þau. Mín reynsla af Digest er frábær, og ég mæli mikið með.“ segir Lína Birgitta og bætir því við að Digest vörurnar séu eitthvað sem hún mælir með fyrir alla að eiga til heima hjá sér, sérstaklega um hátíðirnar.
Náttúruleg ensím án aukaefna
Digest meltingarensímin eru mest seldu ensímin á bandarískum markaði og eru 100% náttúruleg og án allra aukaefna. Ensímin eru sérstaklega hönnuð með það að markmiði að draga úr eða jafnvel koma í veg fyrir einkenni í kjölfar skorts á ensímum. Digest meltingarensímin eru varin einkaleyfisvarinni aðferð sem kallast Therablend. Therablend er aðferð sem blandar mörgum stofnum ensíma saman sem vinna á mismunandi pH- gildum en þannig ná þau að melta hvert orkuefni mun betur og hraðar. Þessi aðferð skilar 5-20 sinnum öflugri ensímum og vinna þau um það bil 3-6 sinnum hraðar en sambærileg meltingarensím á markaði. Digest vörulínan er að jafnaði góð fyrir alla þá sem vilja vinna í að bæta meltinguna.
Digest Basic – Gegn vægum meltingarvandamálum
- Stuðlar að bættri meltingu og nýtingu fæðunnar
- Lítil hylki og auðvelt að gleypa
- Hentar öllum aldri, líka börnum
Digest – Gegn þrálátum meltingarvandamálum
- Tvisvar sinnum öflugri ensímblanda en Digest Basic
- Fullkomin ensímblanda sem styður við meltinguna
Digest Gold – Þróaðasta varan: Tvær vörur í einni
- Sérstaklega gott fyrir fólk sem glímir við fjölþætt meltingarvandamál
- Að jafnaði 20 sinnum sterkari en aðrar gerðir meltingarensíma
- Söluhæsta meltingarvaran í Bandaríkjunum
- Inniheldur ATPro sem samanstendur af ATP, magnesíum citrate, Q10 og Phytase
Digest Spectrum – Gegn fæðuóþoli
- Hentar vel gegn ýmiskonar fæðuóþoli
- Styður meltingu á glúteni, laktósa, kaseini, próteini og fenóli
- Hentar allri fjölskyldunni
- Viðurkennt af Autism Hope Aliance