Finnur mikinn mun á sér með Femarelle
Breytingaskeiðið er eðlilegur hluti af lífsskeiði kvenna og eitthvað sem allar konur ganga í gegnum, hins vegar er afar einstaklingsbundið hvernig konur upplifa tilteknar breytingar. Sumar konur upplifa frelsi og fagna þessum tímamótum og því að vera komin á þann stað í lífinu að búa yfir meiri sjálfsþekkingu, visku og þroska. Hins vegar eru sumar hverjar sem kvíða fyrir þessum breytingum og þeim líkamlegu og andlegu einkennum sem geta fylgt í kjölfarið.
Breytingaskeiðið er fullkomlega eðlilegur kafli í lífi kvenna
Flestar konur finna fyrir því þegar hormónabreytingar hefjast, þó svo að þær geri sér ekki alltaf grein fyrir því að um upphaf breytingaskeiðs sé að ræða. Á meðan sumar konur fara létt í gegnum þetta tímabil eru aðrar konur sem upplifa töluvert skert lífsgæði. Einkenni þeirra hormónabreytinga sem eiga sér stað á þessu tímabili geta verið afar mismunandi milli kvenna. Þau einkenni sem eru oftast til umræðu og flestar konur kannast við að hafa heyrt um eru svitakóf, nætursviti og óreglulegar eða engar blæðingar. Algengt er að ef konur finni ekki fyrir þessum einkennum að þá gruni þeim ekki að þær geti verið komnar á breytingaskeiðið þegar í raun eru einkennin yfir 30 talsins og geta verið ótrúlega lúmsk.
Hér eru nokkrir áhugaverðir punktar sem allar konur ættu að lesa sig til um og hafa í huga:
- Þú getur byrjað að finna fyrir einkennum um eða jafnvel fyrir 40 aldur.
- Þú getur verið byrjuð á breytingaskeiðinu þó svo að þú sért ekki að upplifa hita- og svitaköst.
- Þú getur verið byrjuð á breytingaskeiðinu þó svo að þú sért ennþá með reglulegar blæðingar.
- 9 af hverjum 10 konum finna fyrir andlegri vanlíðan á breytingaskeiðinu.
- Óútskýrð þyngdaraukning, depurð og svefnleysi eru algeng einkenni breytingaskeiðs.
- Það eru til ráð sem geta hjálpa þér að endurheimta sjálfa þig og það er þess virði.
- Þú ert ekki ein!
Finnur mikinn mun þegar hún tekur Femarelle
Valgerður Kummer var um fimmtugt þegar hún byrjaði að upplifa mikil hitakóf og breytta líðan almennt. Hún hafði heyrt af Femarelle og ákvað að prófa „bleika pakkan“ sem er sérstaklega hannaður fyrir hennar aldur en áhrifin leyndu sér ekki. „Mér leið strax mikið betur almennt og ég hætti að fá þessi hitakóf, ég hef síðan þá tekið Femarelle á hverjum degi og ekki fundið fyrir neinum einkennum. Fyrir stuttu síðan fórum við hjónin í tveggja mánaða Evrópu ferð, spennan var svo mikil fyrir ferðina að ég gleymdi að taka Femarelle töflurnar með í ferðina en það var ekki fyrr en ég byrjaði að fá endalaus hitakóf að ég fattaði að ég hafði ekki tekið töflurnar í allan þennan tíma. Þegar ég kom heim fór ég strax og náði mér í Femarelle og byrjaði að taka þær aftur, á morgnana og á kvöldin og eftir sirka þrjár vikur voru hitakófin horfin og í dag er ég alsæl“ segir Valgerður.
„Ég hef aldrei fundið þörf fyrir því að fara á hormóna, í dag er ég 65 ára og tek ennþá Femarelle og það dugir mér svo sannarlega. Ég mæli hiklaust með því konur prufi það fyrst áður en þær leita annarra ráða“ – Valgerður Kummer.
Femarelle er einstök viðbót á breytingaskeiðinu
Fjölmargir kvensjúkdómalæknar í Evrópu mæla með Femarelle vörulínunni sem fyrstu meðferð við breytingaskeiðinu þar sem Femarelle er hormónalaus lausn við einkennum. Vörulínan inniheldur þrjár vörur svo allar konur ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Helsta innihaldsefni í vörulínu Femarelle er einkaleyfisvarið efnasamband, DT56a sem virkar þannig að það örvar estrógen nema í staðbundnum vef, ásamt því að efnið hefur það að markmiði að slá á einkenni tíðahvarfa án þess að hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum.
Femarelle Rejuvenate hentar konum sem eru að upplifa fyrstu einkenni hormónabreytinga og áður en óregla kemst á blæðingar. Blandan inniheldur hörfræ, B2 og B7 vítamín sem stuðlar að eðlilegum efnaskiptum ásamt viðhaldi eðlilegrar húðar, slímhúðar og hárs. Femarelle Recharge er ætlað konum 50 ára+ en varan inniheldur B6 vítamín sem stuðlar að því að halda reglu á hormónastarfsemi sem og dregur úr þreytu og lúa. Femarelle Unstoppable sem er fyrir konur 60+ en blandan inniheldur B2 og B7 vítamín, kalk og D- vítamín sem stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina.
Femarelle vörulínan er afar hentug fyrir konur sem eru að ganga í gegnum þetta margbreytilega skeið og geta allar fundið eitthvað við sitt hæfi.
Femarelle fæst í heilsuhillum stórmarkaða og öllum helstu apótekum landsins.