Erfitt að einbeita sér í amstri dagsins?

/ Erfitt að einbeita sér í amstri dagsins?

Upplifir þú einbeitingaleysi á daginn?

Neubria Focus er háþróað bætiefni sem inniheldur 7 náttúrulegar jurtir auk fjölvítamína sem vinna vel saman með það að markmiði að efla hugræna virkni.

Það kannast eflaust flestir við að eiga erfitt með að einbeita sér af og til en sumir dagar eru jafnframt erfiðari en aðrir. Segja má að einbeiting eigi stóran þátt í velgengni okkar í daglegu lífi. Einstaklingar sem stunda nám þarfnast góðrar einbeitingar sem og einstaklingar á vinnumarkaði þurfa jafnframt góða einbeitingu og fókus til að leysa fjölbreytt verkefni sín dag hvern. Að ná góðri einbeitingu eða fókus heilu dagana í skóla, vinnu eða daglegu amstri er alls ekki sjálfgefið en því er mikilvægt að huga að því hvað hægt sé að gera til þess að halda einbeitingu.neubria focus

 

Ráð til að halda einbeitingu

Þegar kemur að því að halda einbeitingu er mikilvægt að undirbúa hugann fyrir komandi verkefni. Ásamt því er gott að huga að því hvað gæti verið að trufla okkur í nærumhverfi og reyna eftir bestu getu að koma í veg fyrir það. Fyrir þá sem sitja mikið á daginn getur verið gott fyrir einbeitinguna að standa upp og taka sér pásur af og til sem og fá sér ferskt loft sem gerir ótrúlega mikið fyrir okkur. Jafnframt er nauðsynlegt að næra sig vel, huga að góðum nætursvefni og drekka nægilega mikið vatn sem hefur ýmsa heilsusamlega kosti á líkamsstarfsemi okkar. Að auki getur verið gott að taka inn hágæða bætiefni sem innihalda Adaptogen jurtir sem hafa það að markmiði að viðhalda andlegri og líkamlegri líðan, einbeitingu og fókus dags daglega.

 

Adaptogen jurtir

Í náttúrunni leynist fjársjóður í jurtum sem kallast Adaptogen, eða öðru nafni jafnvægisjurtir sem geta komið okkur að góðu gagni. Jurtir sem flokkast sem Adaptogen eru taldar afar áhrifaríkar og öruggar en þær hafa verið notaðar um ómunatíð til að efla heilsu okkar og auka aðlögunarhæfni líkamans gegn álagi. Adaptogen jurtir hafa náð miklum vinsældum á vesturlöndum en mikill áhugi er á að rannsaka eiginleika jurtanna og sífellt fleiri niðurstöður styðja við alda gamlar fullyrðingar forvera okkar um jákvæð áhrif þessara einstöku jurta á líkamann.

 

Neubria bætiefnablöndur

Hjá Neubria starfar úrvalslið sérfræðinga sem hafa það að markmiði að skapa fæðubótarefni sem mæta þörfum nútímans. Mikill metnaður er lagður í að setja saman öflugar blöndur af jurtum og öðrum náttúruefnum ásamt nauðsynlegum vítamínum með áherslu á eðlilega líkamsstarfsemi. Neubria línan samanstendur af fimm útvöldum bætiefnablöndum sem allar innihalda Adaptogen jurtir sem lengi hafa verið þekktar fyrir heilsueflandi eiginleika sína.

 

Neubria Focus

Neubria Focus er bætiefni sérstaklega hannað fyrir þá sem vantar aukna einbeitingu og fókus. Neubria Focus inniheldur m.a. sítrónólín, gingko bilboa, bláber, rósmarín, lútín og bacopa monnieri sem er sennilega best þekkt fyrir jákvæð áhrif á heilastarfsemi ásamt aswagandha sem lengi hefur verið þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika sína. Einnig inniheldur blandan co-enzyme Q10, koffín og zeaxantín sem hefur það að markmiði að vernda augun gegn skaðlegum bláum geislum sem svo sem tölvuskjáir gefa frá sér. A, D-, E, K, C og B vítamín blöndu sem stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins sem og dregur úr þreytu og lúa er einnig að finna í vörunni ásamt mikilvægum steinefnum á  borð við og sink sem stuðlar að eðlilegri vitsmunastarfsemi. Athugið þó að Neubria Focus er koffínbætt bætiefni og er ekki ætlað 16 ára og yngri.