Betri melting yfir aðventuna
Betri melting yfir aðventuna
Meltingarensím og góðgerlar hjálpa okkur að njóta lífsins á aðventunni þannig að okkur líði vel og að auðvelt verði að hefja nýtt ár af krafti.
Nú þegar aðventan fer að ganga í garð með tilheyrandi jóla kræsingum fara margir að gera vel við sig og láta ýmislegt eftir sér í mat og drykk. Aðventan er sá tími árs sem við komum saman til að njóta samvista við okkar nánustu, styrkja böndin og borða góðan mat saman. Flest okkar kannast við það að borða yfir sig af dýrindis mat og fyrir vikið finna fyrir ýmsum kvillum.
Njótum án magaónota
Í kringum aðventuna getur verið mikið álag á meltingunni en við borðum að jafnaði meira af þungum mat en við erum vön, meira af sykri og sætum drykkjum. Þetta verður oft til þess að það verður ójafnvægi á meltingunni sem getur skilað sér í verra heilsufari, sleni og þreytu sem hellist yfir okkur eftir kræsingarnar, ásamt kvillum á borð við uppþembu og magaónot. Öll ættum við að eiga möguleika á að geta notið góðs á aðventunni og er ýmislegt sem hægt er að gera til að koma í veg fyrir kvilla sem slíka. Mikilvægt er að huga að hreyfingu sem og hollri og fjölbreyttri fæðu samhliða kræsingunum, ásamt inntöku á meltingarensímum og góðgerlum sem hafa jákvæð áhrif á meltingarstarfsemi okkar.
Þreyta eftir þungar máltíðir úr sögunni
Það er fátt jafn mikilvægt og að halda meltingunni í lagi þar sem hún spilar lykilhlutverk í líkamlegri og andlegri heilsu. Meltingarensím hjálpa líkamanum að brjóta niður fæðuna og hjálpa okkur að ráða betur við þungar máltíðir og sykraðar kræsingar.
Einkaleyfisvarin ensím
Ensímin frá Enzymedica eru unnin með vinnslu sem kallast Thera-Blend sem er einkaleyfisvarin aðferð sem gerir ensímunum kleift að vinna á mismunandi pH-gildum í líkamanum og ná þannig að melta hvert orkuefni mun betur og hraðar. Ensímin eru þau öflugustu sem völ er á og geta hjálpað til og komið í veg fyrir ýmis ónot tengd meltingu, þau eru fáanleg í fjórum tegundum þar á meðal Digest Spectrum sem er sérstaklega fyrir fæðuóþol. Aðeins 1 hylki af Digest ensími fyrir mat getur létt á þegar mikið mæðir á meltingunni.
Heilsan byrjar í þörmunum
Góðgerlar eru ekki að síður mikilvægir fyrir meltinguna, en góðgerlar hafa heilsueflandi áhrif á líkamann með því að efla meltingu og frásog næringarefna. Bio-Kult Original er sérhönnuð góðgerlablanda sem hefur það að markmiði að byggja upp öfluga þarmaflóru og styðja við meltinguna. Hylkin innihalda 14 tegundir sérvalinna frostþurrkaðra gerlastofna sem styrkja og geta komið þarmaflórunni í jafnvægi. Bio-Kult Original er frábær byrjun fyrir aðila sem taka ekki inn góðgerla, en mælt er með því fyrir alla.