Afkastar mun meira á æfingum með rauðrófu hylkjunum frá Natures Aid

/ Afkastar mun meira á æfingum með rauðrófu hylkjunum frá Natures Aid

Í aldanna raðir hefur neysla á rauðrófum verið talin geta haft ýmis heilsueflandi áhrif á líkama  okkar og notkun hennar má rekja allt að 2000 ár aftur í tímann til Rómverja. Áhugi á heilsueflandi eiginleikum rauðrófunnar er sífellt að aukast og þá sérstaklega hjá íþróttafólki þar sem að rauðrófan inniheldur nítröt sem er sannkölluð ofurfæða.

 

Bjarni Jakob þríþrautar kappi mælir hiklaust með rauðrófuhylkjunum frá Natures Aid fyrir alla, sérstaklega íþróttafólk.

Hylki eru hentug lausn fyrir þá sem ekki vilja bragðið af rauðrófunni

Rauðrófur eru af sömu plöntuætt og spínat og tilheyra tegundinni Beta vulgaris. Rauðrófur eru sneisafullar af næringar- og plöntuefnum og innihalda m.a. ríkulegt magn af járni, A-, B6- og C- vítamíni, fólínsýru, magnesíum og kalíum. Þar að auki innihalda þær góð flókin kolvetni, trefjar og öflug andoxunarefni. Ekki allir eiga safavél heima hjá sér og enn færri nenna að standa í því að pressa sér hreinan rauðrófusafa á hverjum degi þar sem því fylgir mikið uppvask og býður upp á að litarefnið úr safanum á það til að lita allt sem það kemst í tæri við. Ásamt því eru ekki allir jafn hrifnir af bragðinu af safanum og er því rauðrófuduft í hylkjum góð lausn til að bæta þessari vinsælu ofurfæðu inn í daglega rútínu.

 

Aukið úthald og mun orkumeiri á æfingum

Bjarni Jakob Gunnarsson er 35 ára verkfræðingur og tveggja barna faðir. Bjarni Jakob stundaði fótbolta frá 4 ára aldri en lauk ferli sínum árið 2015 og hóf CrossFit í kjölfarið. Í dag stundar Bjarni Jakob hins vegar þríþraut af kappi og keppir í þrautinni með frábærum árangri. Bjarni Jakob hefur verið að notast við rauðrófuhylkin frá Natures Aid í dágóðan tíma samhliða þríþrautinni og deilir hér með okkur sinni reynslu. ,,Ég kynntist gagnsemi rauðrófunnar í gegnum æfingafélaga mína í þríþrautinni sem höfðu verið að neyta þeirra í kringum æfingar og keppnir með frábærum árangri. Ég ákvað því að prófa rauðrófusafa en færði mig fljótt yfir í hylkin frá Natures Aid vegna bragðsins og litarins af safanum. Mér þykir rauðrófuhylkin frá Natures Aid veita mér aukinn kraft á æfingum, ég er orkumeiri og finnst ég afkasta mun meira á æfingum þegar ég tek inn hylkin. Einnig er frábær kostur að ég finn almennt fyrir minni kulda í líkamanum þegar ég tek inn rauðrófuhylkin og þau eru ótrúlega þægileg í notkun og hentugt að innbyrða 2 hylki daglega eins og ráðlagt er. Ég passa alltaf að taka hylkin inn á sama tíma dags, 2 – 3 tímum fyrir æfingu en ég finn mikinn mun á mér og hef fulla trú á þessu bætiefni.‘‘ segir Bjarni Jakob um tilkomu rauðrófu hylkjanna í sína daglegu rútínu.

 

 ,,Rauðrófuduftið frá Natures Aid veitir mér aukinn kraft og orku og mér finnst ég afkasta mun meira á æfingum, ég hef fulla trú á þessu bætiefni. Einnig er frábær kostur að ég finn almennt fyrir minni kulda í líkamanum þegar ég tek inn rauðrófuhylkin. Ég mæli með hylkjunum fyrir alla, sérstaklega íþróttafólk.‘‘ – Bjarni Jakob.

 

Áhrifin leyna sér ekki

Bjarni Jakob tekur fram að eftir að hann fór að innbyrða hylki í stað safans fyrir æfingar hefur hann fengið ýmsar fyrirspurnir, sérstaklega frá íþróttafólki. Hann átti m.a. samtal við tvo einstaklinga sem neyta að sama skapi tiltekinna hylkja, sá fyrri stundar maraþon hlaup og sá seinni spilar knattspyrnu í 1. deild karla og mæltu þeir báðir ,,Ég hef aldrei verið orkumeiri síðan ég byrjaði að taka inn hylkin og finn ég mikinn mun á mér á löngum æfingum‘‘. Bjarni Jakob mælir hiklaust með rauðrófu hylkjunum frá Natures Aid, sérstaklega fyrir þá sem vilja bæta árangur sinn á æfingum og keppnum.

 

100% náttúruleg innihaldsefni í rauðrófu hylkjunum frá Natures Aid

Rauðrófu hylkin frá Natures Aid eru 100% náttúruleg og án allra aukefna. Eitt hylki jafngildir 4.620 mg af þurrkaðri rauðrófu. Mælt er með að innbyrða 2 hylki á dag með mat sem samsvarar 9.240 mg af þurrkaðri rauðrófu. Að auki er auðvelt að opna hylkin og bæta duftinu út í heilsudrykki eða grautinn. Hylkin eru án allra gervi- og litarefna sem og mjólkur-, laktósa-, glúten- og sykurlaus.

 

Rauðrófuhylkin frá Natures Aid eru 100% náttúruleg og án allra aukefna. Auðvelt er að opna hylkin og bæta duftinu út í heilsudrykki eða grautinn.

Þar sem að talið er að nítröt í rauðrófum hafi áhrif á blóðþrýsting ættu þeir sem hafa lágan blóðþrýsting eða taka blóðþrýstingslyf að ráðfæra sig við lækni áður en þeir bæta rauðrófum við mataræði sitt.