Ginger, Turmeric & Bromelain

/ Heilsuvörur / Vítamín & bætiefni / Ginger, Turmeric & Bromelain
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir

Ginger, Turmeric & Bromelain

Natures Aid
Vörunúmer: 16000169
Pakkningastærð: 60 töflur
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir

Ginger, Turmeric & Bromelain

Engifer, túrmerik og brómelín er einstök formúla sem byggð er á árþúsunda gömlum austurlenskum hefðum. Þessi formúla sameinar þrjú náttúruleg innihaldsefni í einni töflu, engifer, túrmerik og brómelín.

Margir þekkja engiferrótina úr austurlenskri matargerð og hefur túrmerik rótin sem er náskyld engifer verið mikið notuð í kínverskum og indverskum hefðum. Bromelain (brómelín) er samheiti yfir ensím sem sem finnast í ananassafa og ananasplöntunni sjálfri. Styrkleiki þessara ensíma er að þau geta meðal annars brotið niður prótein og gelatín.

  • Fyrir 6 ára og eldri.
  • Hentar vegan og grænmetisætum.
  • Án erfðabreyttra efna, gervi-, lit- og bragðefna.
  • Mjólkur-, glúten-, ger-, hnetu-, salt-, soya-, sterkju- og sykurlaust.
  • Ekki ráðlagt fyrir barnshafandi konur og konur með barn á brjósti.
  • Ekki ráðlagt fyrir þá sem eru blóðþynnandi lyfjum eða hafa fengið gallsteina.

Notkun: 1-3 töflur á dag með mat.

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Tengdar vörur…