Digest Lacto

Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir

Digest Lacto

Enzymedica
Vörunúmer: 31048
Pakkningastærð: 30 hylki
Dreifingaraðili: Distica
Sölustaðir
Sölustaðir
  • Apótek
  • Almennar verslanir

Fullkominn stuðningur fyrir þau sem glíma við mjólkuróþol.

Nýjasta varan í Digest fjölskyldunni er Lacto og er fyrir þau sem eru með mjólkuróþol.  Margir eiga erfitt með að melta mjólkurvörur og hefur þessi háþróaða ensímblanda það sérstaklega að markmiði að hjálpa líkamanum að brjóta niður laktósa og kasein (mjólkur prótein) sem er í mjólkurvörum. Ensímin í Lacto eru unnin með sérstakri aðferð sem kallast Therablend og gerir það að verkum að ensímin haldist virk í gegnum allt meltingarferlið til þess að hámarka árangur.

  • Án fylliefna, bindiefna eða annarra flæðiefna
  • Mjólkur-, glúten og soyalaust
  • Lítil hylki, hentar börnum
  • Vegan

Enzymedica hefur einkaleyfi á aðferð sem kallast Therablend en þá er blandað mörgun stofnum ensíma sem vinna á mismunandi pH- gildum og ná þau þannig að melta hvert orkuefni mun betur og hraðar. Ensím sem unnin eru með þessari aðferð hafa mælst á bilinu 5-20 sinnum öflugri og vinna meira en sex sinnum hraðar en önnur leiðandi meltingarensím.

Notkun: 1 hylki fyrir hverja máltíð – eftir þörfum.

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.