BetterYou Vítamín sprey – Munnúðarnir sem margborga sig

/ BetterYou Vítamín sprey – Munnúðarnir sem margborga sig

Munnúðarnir frá Better You eru einstaklega góð lausn til að innbyrða ráðlagðan dagskammt af D- vítamíni sem gegnir fjölda mikilvægra hlutverka í líkamanum.

Á Íslandi er sérlega mikilvægt að huga að inntöku D- vítamíns á formi bætiefna, sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Ástæðan er sú að því hærra sem sólin er á lofti, því meira D- vítamín getum við nýtt. Hér á landi er sólin ekki nægilega hátt á lofti stóran hluta ársins sem er sérlega óheppilegt fyrir okkur þar sem við eigum þar af leiðandi lítinn séns á að framleiðsla D- vítamíns geti orðið til í húðinni. En afhverju er D- vítamín svona mikilvægt fyrir okkur? Jú, D- vítamín gegnir ýmist lykilhlutverki í viðhaldi sterkra beina og tanna og skiptir til að mynda sköpum í viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfsemi sem og fyrir heilbrigt ónæmiskerfi okkar. Hins vegar er þó margt sem gefur til kynna að D- vítamín gegni mun víðtækara hlutverki en talið var og það sé í raun grundvallarefni til að viðhalda heilsu og vellíðan okkar og fyrirbyggja hina ýmsu heilsufars kvilla.

Úlfar Konráð Svansson, vörumerkjastjóri hjá Artasan, og Ásdís Birta Auðunsdóttir, heilsu- og næringarfulltrúi hjá Artasan.

Better You munnúðarnir henta fyrir alla fjölskylduna þar sem mismunandi styrkir eru til sem henta hverjum og einum, úðarnir fást í styrkleika allt frá 10 µg til 100 µg. Munnúðar eru einföld leið til þess að fá þetta mikilvæga vítamín í líkamann fyrir alla fjölskylduna. – Úlfar Konráð vörumerkjastjóri Better You á Íslandi

 

Mörgum getur þótt erfitt að innbyrða D- vítamín í föstu formi

Mörgum hverjum getur þótt heldur erfitt að innbyrða mikilvægt D- vítamín í föstu formi en þá eru munnúðar einstaklega hentug og áhrifarík leið til þess að innbyrða ráðlagðan dagskammt. Munnúðarnir frá Better You eru sérstaklega hannaðir þannig að þeir frásogist beint inn í blóðrásina en með því að spreyja undir tungu eða út í kinn fer spreyið fram hjá meltingarveginum og tryggir þannig hámarks upptöku. Munnúðar eru einföld leið fyrir alla, sérstaklega fyrir þá sem eiga í erfiðleikum með að kyngja töflum/hylkjum eða hafa undirliggjandi kvilla á borð við meltingarvandamál, ásamt fyrir börn á öllum aldri.

 

Better You munnúðar fyrir allan aldur

Better You vörurnar hafa notið mikilla vinsælda og ekki af ástæðulausu þar sem mikið er lagt upp úr gæðum og að upptaka vítamína sé tryggð. Better You framleiðir öll þau helstu vítamín sem þörf er á fyrir eðlilega líkamsstarfsemi en D- vítamín línan hefur slegið í gegn. Línan hentar fyrir allan aldur þar sem mismunandi styrkir eru til sem hentar hverjum og einum hverju sinni, vörurnar fást í styrkleika allt frá 10 – 100 µg (míkrógrömm).

D1000 munnúðinn inniheldur 25 míkrógrömm í ráðlögðum dagskammti og hentar 8 ára og eldri. Næsti styrkur hjá Better You er D3000 sem inniheldur 75 míkrógrömm af D3 vítamíni í ráðlögðum dagskammti og hentar 13 ára og eldri. D4000 inniheldur 100 míkrógrömm ad D- vítamíni í skammti.

 

Ásdís Birta, heilsu- og nær­ing­ar­full­trúi, seg­ir Better You munnúðana ein­falda leið til að viðhalda ráðlögðum dagskammti af D-víta­míni.

D- vítamín spilar stórt hlutverk þegar kemur að heilsu okkar og vellíðan og er því sérlega mikilvægt að huga vel að forða líkamans, sérstaklega núna þegar sólin fer dvínandi hér á Íslandi. Better You munnúðarnir eru einfaldir og margborga sig fyrir alla fjölskylduna. – Ásdís Birta, BS gráða í næringarfræði

 

Ekki gleyma að gefa börnunum D- vítamín

Börn þurfa líkt og aðrir að fá D- vítamín viðbót frá unga aldri þar sem móðurmjólk inniheldur ekki nægjanlegt magn til að uppfylla þarfir barna og er því mikilvægt að gefa viðbót fljótlega eftir fæðingu. Fyrstu ár ævinnar eru beinin að vaxa og þéttast og skiptir því miklu máli að börn fái viðbót til að stuðla að viðhaldi eðlilegra beina. D- vítamín er að auki nauðsynlegt fyrir upptöku og nýtingu á kalki, sem og mikilvægt fyrir tennur og eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins. Börnum er ráðlagt að fá 10 míkrógrömm af D- vítamín daglega.

D400 Infant frá Better You er hugsað fyrir börn yngri en þriggja ára en munnúðinn inniheldur 10 míkrógrömm af D- vítamíni, úðinn er bragðlaus sem hentar einstaklega vel fyrir þau allra yngstu. D400 Junior er ætlað börnum eldri en þriggja ára en úðinn inniheldur að auki 10 míkrógrömm en er með bragðgóðu piparmyntu bragði. ,,Hugum að mikilvægri D- vítamín inntöku alla tíð, frá fæðingu upp til eldri ára með Better You munnúðunum.‘‘

 

Munnúðarn­ir frá Better You fást í öll­um helstu apó­tek­um og stór­mörkuðum og eru fá­an­leg­ir í mis­mun­andi styrk­leik­um sem henta hverj­um og ein­um

 

Better You finn­ur einnig til sam­fé­lags­legr­ar ábyrgðar og hef­ur til­einkað sér þann frá­bæra eig­in­leika að tryggja að vöru­úr­valið hafi sem minnst skaðleg áhrif á jörðina. All­ar vör­ur frá Better You eru því laus­ar við pálma­ol­íu og eru pakkaðar í end­urunnið plast úr sjó sem er allt 100% end­ur­vinn­an­legt.