Hugum að D- vítamíninu allan ársins hring
D- vítamín munnúðarnir frá Better You eru einstaklega góð lausn til að fá inn ráðlagðan dagskammt af þessu mikilvæga vítamíni fyrir alla aldurshópa.
Á Íslandi er sérlega mikilvægt að huga að inntöku D- vítamíns á formi bætiefna, sérstaklega yfir vetrarmánuðina þar sem sólin hér á landi er ekki nægilega hátt á lofti. D- vítamín gegnir ýmist lykilhlutverki í viðhaldi sterkra beina og tanna og skiptir til að mynda sköpum í viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfsemi sem og fyrir heilbrigt ónæmiskerfi. Margt gefur þó til kynna að D- vítamín gegni mun víðtækara hlutverki en talið var og það sé í raun grundvallarefni til að viðhalda heilsu og fyrirbyggja hina ýmsu heilsufars kvilla. Eflaust eru margir sem ekki vilja taka inn mikilvægt D- vítamín í föstu formi en þá eru munnúðar einstaklega hentug og áhrifarík leið. Munnúðar eru einföld leið fyrir alla, sérstaklega fyrir þá sem eiga í erfiðleikum með að kyngja töflum/hylkjum eða hafa undirliggjandi kvilla á borð við meltingarvandamál, ásamt fyrir börn á öllum aldri.
Better You munnúðar fyrir alla fjölskylduna
Better You vörurnar hafa notið mikilla vinsælda og ekki af ástæðulausu þar sem mikið er lagt upp úr gæðum og að upptaka vítamína sé tryggð. Munnúðarnir eru sérstaklega hannaðir þannig að þeir frásogist beint inn í blóðrásina en með því að spreyja undir tungu eða út í kinn fer spreyið fram hjá meltingarveginum og tryggir þannig hámarks upptöku. Better You framleiðir öll þau helstu vítamín sem þörf er á fyrir eðlilega líkamsstarfsemi en D- vítamín línan hefur slegið í gegn. Línan hentar fyrir alla fjölskylduna þar sem mismunandi styrkir eru til sem hentar hverjum og einum hverju sinni, vörurnar fást í styrkleika allt frá 10 µg til 100 µg. Better You hefur einnig tileinkað sér þann frábæra eiginleika að fyrirtækið tryggir að vöruúrval þeirra hafi sem minnst áhrif á jörðina og eru því allar vörur svo sem lausar við pálmaolíu sem og eru pakkaðar í endurunnið plast úr sjó sem er allt 100% endurvinnanlegt.
D- vítamín munnúði fyrir þau yngstu
Fljótlega eftir fæðingu er vert að huga að D- vítamín gjöf fyrir ungabarnið. Móðurmjólkin sem er svo næringarrík inniheldur ekki nægjanlegt magn D- vítamíns til að uppfylla þarfir barna og er því mikilvægt að gefa viðbót frá 1-2 vikna aldri. Fyrstu ár ævinnar eru beinin að vaxa og þéttast og skiptir því miklu máli að börn fái viðbót til að stuðla að viðhaldi eðlilegra beina. D- vítamín er að auki nauðsynlegt fyrir upptöku og nýtingu á kalki, sem og mikilvægt fyrir tennur og eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins. Til eins árs aldur er ráðlagður dagskammtur af D- vítamíni 10 míkrógrömm. D- vítamínin frá Better You er til fyrir alla aldurshópa en D400 Infant er hugsað fyrir börn yngri en þriggja ára. Munnúðinn inniheldur 400 IU eða 10 μg af D- vítamíni í ráðlögðum dagskammti en munnúðinn er bragðlaus sem hentar afar vel fyrir þau yngstu. Einnig býður Better You upp á D400 Junior sem ætlað er börnum eldri en 3 ára. Úðinn inniheldur 400 IU eða 10 μg en slíkur munnúði er með bragðgóðu piparmyntu bragði og hentar eldri en 3 ára því betur. Ekki gleyma að gefa þínu barni mikilvægt D- vítamín og einfaldaðu daglega verkið með Better You munnúða.
Veldu hvað hentar best hverju sinni
Better You býður upp á þrenns konar styrkleika í D- vítamín munnúða svo allir geti fundið styrk sem hentar hverju sinni. D1000 munnúðinn inniheldur 1000 IU eða 25 μg í ráðlögðum dagskammti og hentar 8 ára og eldri. Næsti styrkur hjá Better You er D3000 sem inniheldur 3000 IU eða 75 μg af D3 vítamíni í ráðlögðum dagskammti og hentar 13 ára og eldri. D4000 inniheldur 4000 IU eða 100 μg ad D- vítamíni í skammti. D1000, D3000 og D4000 frá Better You eiga það allar sameiginlegt að vera með bragðgóðu piparmyntubragði sem oftar en ekki slær í gegn. Better You býður að auki upp á einstaka blöndu D+ K2 vítamíns sem inniheldur 3000 IU eða 75 μg af D- vítamíni og 75 mg af K2 vítamíni en samvirkni þessara vítamína tryggja að kalkið frásogist úr blóðinu og skili sér til beinanna þar sem það bætir beinþéttni. Munnúðinn hentar 13 ára og eldri ásamt barnshafandi konum og konum með barn á brjósti. Hugum að mikilvægri D- vítamín inntöku alla tíð, frá fæðingu upp til eldri ára með Better You munnúðunum.
D400 Infant og Junior munnúðarnir eru einstaklega góður kostur fyrir börn til að fá inn ráðlagðan dagskammt af D- vítamíni á bragðgóðan máta.
D- vítamín munnúðinn frá Better You fæst í styrkleika fyrir alla fjölskylduna þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
D- vítamín gegnir lykilhlutverki í viðhaldi sterkra beina og tanna og skiptir til að mynda sköpum í viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfsemi sem og fyrir heilbrigt ónæmiskerfi.