Ný vítamín framleidd með hinni byltingarkenndu Líposomal tækni

/ Ný vítamín framleidd með hinni byltingarkenndu Líposomal tækni

NÝTT!! Hraðari upptaka – Betri virkni

Ný vítamín framleidd með hinni byltingarkenndu Líposomal tækni

Cure Support hefur í tvo áratugi verið að þróa hin öflugustu bætiefni sem völ er á með Liposomal tækni sem tryggir hámarks nýtingu og upptöku næringarefna í líkamanum.

Cure Support er hollenskt fyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu á hágæða bætiefnum. Fyrirtækið er með sína eigin framleiðslu þar sem þeirra helsta áhersla liggur að frásogi bætiefna í líkama okkar. Þessi háþróaða tækni hefur verið að þróast í tvo áratugi og ekki að ástæðulausu sem þær hafa slegið í gegn. Aðalmarkmið Cure Support er að útbúa áhrifarík bætiefni sem veita þér hámarks virkni og góða líðan.

Liposomal tækni tryggir hámarks nýtingu og upptöku næringarefna
Bætiefnin frá Cure Support hafa þá sérstöðu að þau eru framleidd með svokallaðri Liposomal tækni. Liposomal eru örlitlar kúlulaga loftbólur sem samanstanda af einu eða fleiri fosfólípíðum sem eru náttúruleg lípíð eða fita. Bætiefni með tiltekinni tækni eru umlukin tvöfaldri fituhimnu sem vernda og auka upptöku í meltingarvegi en tæknin gerir það að verkum að bætiefnið virkar hraðar og betur ásamt því að líkaminn á auðveldara með að nýta næringarefnin og ver þau fyrir efnum í meltingarkerfinu sem geta haft áhrif á upptöku. Tæknin hefur að auki þá eiginleika að verja næringarefnin fyrir svo sem ensímum, magasýrum og öðru sem fyrir finnst í meltingarkerfinu sem gerir það að verkum að næringarefnin skila sér þannig betur til frumna og vefja og kemur þannig í veg fyrir að stærri skammtar af vítamínum valdi óþægindum eða truflunum í meltingarvegi. Með slíkum hætti verður upptakan mun skilvirkari og tryggir tæknin hámarks nýtingu og upptöku næringarefnanna í líkamanum. Bætiefni sem unnin eru með Liposomal tækni henta svo sem afar vel fyrir þá sem eiga erfitt með að upptöku næringarefna af einhverri ástæðu sem og öllum sem vilja skilvirka og góða upptöku næringarefna.
Cure Support býður upp á gríðarlega gott úrval af öflugum vörum sem hannaðar eru með Liposomal tækni.
Vörulína Cure Support inniheldur eitthvað fyrir alla.

– Vegan
– Enginn sykur
– Ekkert glúten
– Engin gerviefni

  • Q10 – Hefur lengi verið þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika sína á mannslíkamann en það tekur meðal annars þátt í því að vinna orku úr fæðuefnum í grunnefnaskiptum frumnanna ásamt því að vera öflugt andoxunarefni.
  • B12 – stuðlar meðal annars að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og er afar mikilvægt fyrir myndun rauðu blóðkornanna sem sjá um að flytja súrefni um líkama okkar.
  • D3 – er nauðsynlegt fyrir alla, sérstaklega okkur á Íslandi, en það stuðlar meðal annars að viðhaldi eðlilegra beina og tanna.
  • D3-K2 – einstaklega áhrifarík blanda en samvirkni D3 og K2 er gríðarlega mikilvæg fyrir mannslíkamann. Saman stuðla þessi næringarefni að kalk frásogist úr blóðinu og skili sér til beina og getur þar af leiðandi aukið beinþéttni.
  • C vítamín – Gegnir fjölda mikilvægra hlutverka í líkama okkar, meðal annars hjálpar það til að mynda bandvef (kollagen) sem er mikilvægur fyrir vöxt æða, beina, tanna og fleira. Eins eykur það frásog járns.
  • Magnesíum – er gríðarlega mikilvægt steinefni sem sérhver fruma í líkamanum þarf á að halda. En það tekur meðal annars þátt í myndun beina, byggingu próteina, virkjun ensíma og margt fleira.

 

Ásdís Birta Auðunsdóttir, heilsu- og næringarfulltrúi hjá Artasan.