Eru eymsli í liðum að hrjá þig?

/ Eru eymsli í liðum að hrjá þig?

Glúkósamín sem hefur verið eitt vinsælasta liðbætiefnið erlendis um langa hríð fæst nú í bætiefnaformi hér á landi og vinsældir þess færast sífellt í aukana. Talið er að glúkósamín auki viðgerðarhæfni líkamans og geti dregið úr eymslum í liðum. Eitt af algengustu vandamálum stoðkerfisins eru eymsli í liðum. Mismunandi er í hvaða liðum verkirnir eru en oft eru það hnéin eða fingurnir  sem láta mest finna fyrir sér. Margir finna líka fyrir verkjum í mjöðmum, öklum eða öðrum liðum, en sama hvar er þá skal ávallt hafa í huga að kyrrseta er aldrei til bóta og það er ýmislegt hægt að gera til að láta sér líða betur.

glucosamin

Leiðir til úrbóta

Það er ýmislegt í lífsstílnum sem hefur áhrif á liðheilsu og því er um að gera að huga vel að ákveðnum þáttum sem geta haft jákvæð áhrif og jafnvel dregið úr eymslum. Þar ber helst að nefna mataræði og hreyfingu.

Mikilvægt er að borða sem mest af hreinni fæðu og taka inn bæði D-vítamín og Omega-3. Þegar við tökum mataræðið í gegn getur það leitt til þess að við léttumst, sem er í flestum tilfellum jákvætt því ofþyngd reynir meira á liðina. Ofþyngd leiðir oft af sér hreyfingarleysi eða minni hreyfingu en annars og þannig myndast vítahringur þar sem þyngd, eymsli og hreyfingarleysi ýta undir hvert annað.

Stundaðu hreyfingu við hæfi og styrktu vöðvana kringum liðina. Köld böð geta einnig hjálpað, en númer 1, 2 og 3 er að hafa mataræðið í lagi því það sem við látum ofan í okkur hefur ótrúlega mikil áhrifin á líðan okkar.

 Glúkósamín og kondrotín bætiefnablanda

Glucosamine & Chondroitin Complex frá Natures Aid er vel samansett liðbætiefnablanda þar sem tekið er á fjölmörgum þáttum sem tengjast aumum liðum. Auk glúkósamíns inniheldur þessi bætiefnablanda kondtrótín súlfat sem er byggingarefni brjósks og geta þessi tvö efni því verið afar góð blanda fyrir liðina, en dagsskammtur inniheldur 1.000 mg af glúkósamíni og 200 mg af kondrótíni, ásamt engifer, túrmerik, C-vítamíni og rósaldin (rosehips). Engifer og túrmerik eru rætur sem hafa verið þekkt fyrir bólgueyðandi eiginleika sína og C -vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi brjósks.

Líkaminn framleiðir sjálfur glúkósamín, en sú framleiðsla minnkar þó með aldrinum og því getur verið mikilvægt að taka inn glúkósamín þar sem það eykur framboð þess í líkamanum, sem þýðir að viðgerðarhæfni hans eykst umfram það sem annars væri mögulegt.

Samhliða heilbrigðu mataræði, réttri hreyfingu og að sjálfsögðu góðum svefni, getur blanda eins og Glucosamin & Chondroitin Complex nýst á jákvæðan hátt.“

Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna