Better You D3000+K2
Better YouSamvirkni D- og K2 vítamíns tryggja kalk upptöku
Hver einasta fruma líkamans þarf D- vítamín og það er jafnframt eina vítamínið sem við þurfum að fá á bætiefnaformi alla ævi. Skortur á D- vítamíni getur m.a. komið fram í lélegri beinheilsu og skemmdum tönnum því það sér um frásogun á kalki. Samvirkni D- og K2 vítamíns tryggja að kalkið frásogist úr blóðinu og skili sér til beinanna þar sem það bætir beinþéttni. Ef við fáum ekki nægilegt magn af K2 vítamíni, geta líkur á ýmsum kvillum aukist.
- Ákjósanlegur kostur fyrir bætta beinheilsu
- Betri upptaka í munnúðaformi
- Náttúrulegt piparmintubragð
- Hámarksupptaka þegar úðað er út í kinn
Ráðlagðir dagskammtar af D- vítamíni skv. Landlæknisembættinu:
Skv. Landlæknisembættinu eru efri mörk ráðlagðrar neyslu 100 μg á dag (4000 AE) fyrir fullorðna, 50 μg (2000 AE) fyrir börn eldri en eins árs að tíu ára aldri og 25 μg (1000 AE) fyrir ungbörn að eins árs aldri.
Notkun: 3 úðar á dag. 3 úðar á dag gefa 3000 a.e. af D- vítamíni og 75μg af K2 vítamíni (100% af RDS). Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
bragðgott vítamín sem tryggir góða upptöku.
-
B12 munnúði.